Mun fleiri lítrar voru í boði á nýliðnum mjólkurkvótamarkaði en á septembermarkaðnum, en færri sölutilboð voru þó þar að baki.
Mun fleiri lítrar voru í boði á nýliðnum mjólkurkvótamarkaði en á septembermarkaðnum, en færri sölutilboð voru þó þar að baki.
Mynd / smh
Fréttir 6. nóvember 2026

Verð heldur áfram að hækka

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur 2. nóvember hélt jafnvægisverð áfram að hækka frá fyrri mörkuðum og var við opnun tilboða komið í 300 krónur á lítrann, sem er 30 krónum hærra en á síðasta markaði í september.

Jafnvægisverðið hefur ekki verið jafnhátt síðan í nóvember 2023.

Fjögur gild sölutilboð bárust nú og fækkar um þrjú frá síðasta markaði. Hins vegar var talsverð aukning í magni lítra sem í boði voru, eða alls 563.487 lítrar samanborið við 379.072 lítra á septembermarkaðnum.

Kauptilboðum fækkaði líka úr 89 í 59, en alls var óskað eftir 2.801.000 lítrum núna samanborið við 3.985.000 lítra á septembermarkaðnum.

Seljendur sem lögðu fram tilboð á jafnvægisverði eða lægra voru þrír og selja 100% af sínu framboðna magni. Kaupendur með tilboð á jafnvægisverði eða hærra voru 13 talsins og fá 69% af því magni sem sóst var eftir.

Af kauptilboðum er einn aðili sem fær úthlutað úr forgangspotti nýliða.

Skylt efni: mjólkurkvóti

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...