Franskar kartöflur geta verið girnilegar.
Franskar kartöflur geta verið girnilegar.
Mynd / Pixabay
Utan úr heimi 11. ágúst 2026

Verð á kartöflum allt niður í 0 evrur

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

20-30% kartöfluuppskeru er seld á frjálsum markaði þar sem nær ekkert fæst fyrir uppskeruna. Um 860 þúsund tonn eru enn óseld frá síðasta ári.

Kartöflur eru framleiddar á 107 þúsund hekturum í Belgíu, sem er einn af fimm stærstu kartöfluframleiðendum Evrópu og einn stærsti framleiðandi heims á frosnum unnum kartöfluvörum. Eftirspurn eftir kartöflum er nú minni en oft áður og verðhrun hefur orðið á kartöflum ætluðum til framleiðslu á frönskum kartöflum.

Fordæmalaus kartöfluofgnótt

Verð á kartöflum til framleiðslu á frönskum hefur verið í frjálsu falli í Belgíu undanfarið ár. Frá apríl og fram í júní fengust 0 evrur fyrir hluta uppskeru samkvæmt verðmati Belgapom, samtökum kartöfluiðnaðarins. Verðið á við 20-30% af uppskerunni sem seld er á frjálsum markaði og eru ekki þegar bundin í kaupsamningum. Verðmat Belgapom er nú 20 evrur samanborið við 295 evrur fyrir samningsbundið tonn. Frá 2001 hefur Belgapom vikulega birt sitt eigið verðmat eftir að stjórnvöld ákváðu að hætta að verðleggja kartöflur.

Belgar kalla þessar kartöflur iðnaðarjarðepli (industrieaardappelen) eða geymslujarðepli (bewaaraardappelen). Þær eru að mestu leyti ræktaðar í Flanders héraði í sendnum jarðvegi. Um 860 þúsund tonn eru enn óseld frá síðasta ræktunartímabili. Von er á nýrri uppskeru í mánuðinum en kartöflugeymslur bænda eru margar hverjar enn fullar. Verðhrunið hefur ekki áhrif á verð til neytenda þar sem um stórvaxið kartöfluyrki til frekari vinnslu er að ræða. Síðasta haust reyndu margir ræktendur að selja þær milliliðalaust fyrir slikk. Takmarkaður möguleiki er á að nýta þær til dýrafóðurs eða í lífgasframleiðslu. Bændur fá ekkert greitt fyrir það, nema mögulega flutningskostnaðinn.

Í frétt belgíska miðilsins VRT NWS er rætt við Guy Depraetere, kartöflusérfræðing hjá Bændasamtökum Belga (ABS). Hann segir kartöfluofgnóttina ekki óþekkt fyrirbæri, en nú sé uppnámið fordæmalaust. Hann segir framleiðendur hafa keypt minna af kartöflubændum en um var samið og án bóta.

Viðskiptatollar og nýir samkeppnisaðilar

Kartöfluframleiðsla í heiminum hefur aukist um 8% á undanförnum 10 árum og belgísku ræktendurnir eiga í harðri samkeppni við ræktendur í Kína, Indlandi, Egyptalandi og Tyrklandi. Kartöfluframleiðendur í fleiri Evrópulöndum standa frammi fyrir sama vanda.

Christophe Vermeulen, forstjóri Belgapom, segir á heimasíðu sam- takanna niðursveifluna eðlilega í ljósi þess að Belgar séu leiðandi á heimsmarkaði í ræktun iðnaðar- kartaflna. Hann segir nauðsynlegt að bændur séu sveigjanlegir og áréttar að þegar séu um 75% af uppskerunni seld á góðu verði í gegnum samninga. Hann segir kartöfluiðnaðinn frjálsan iðnað sem lúti ekki sömu lögmálum og grænmetisræktun eða mjólkurframleiðsla og ástandið sé tímabundið. Landbúnaðarráðherra lagði fram tillögu um stofnun samtaka framleiðenda, sem Vermeulen sagði sýna samúð, en vera óþarfa.

Krúnudjásn belgískra frönskukartöfluframleiðenda, Clarebout, var á síðastliðnu ári selt til bandarísks risafyrirtækis, J.R. Simplot. Clarebout var fyrir söluna með yfir 3.000 starfsmenn. Clarebout og fleiri stór fyrirtæki kaupa uppskeru frá kartöflubændum samkvæmt samningi og fullvinna úr þeim frosnar kartöfluvörur. Sé þörf á kaupa þau umframuppskeru á frjálsum markaði. Í ljósi sölunnar hafa bandarískir viðskiptatollar nú aukin áhrif, auk samkeppninnar við framleiðendur í öðrum heimsálfum.

Bændasamtök Belga biðluðu í upphafi árs til kartöfluræktenda um að framleiða um 20% minna. Þeir hafa því horft til annarra möguleika í ræktun samhliða kartöflunum. Samkeppni er einnig hörð í kornræktun, sykurrófum og maís, sem eru þær tegundir sem þeir hafa helst horft til. Belgíski sykurframleiðandinn Tiense Suiker hafði þegar lýst yfir 20% minni kaupum á belgískum sykurrófum vegna aukins innflutnings brasilísks reyrsykurs.

Skylt efni: Kartöflur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...