Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfða sigurvegarar í tölti og slóu um leið heimsmet!
Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfða sigurvegarar í tölti og slóu um leið heimsmet!
Mynd / Freydís Bergsdóttir
Fréttir 17. ágúst 2026

Úrslit Landsmóts 2026

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Landsmót hestamanna fór fram dagana 5.–11. júlí sl. en sigur- vegarar mótsins voru Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Hilmarsson með 9,13 í aðaleinkunn.

Sýningin þótti glæsileg þó aðstæður hafi verið aðeins krefjandi vegna vinda. Landsmótið 2026 fór fram á Hólum í Hjaltadal og var vel sótt. Halla Tómasdóttir forseti mætti á mótið til að afhenda verðlaun og „dást að íslenska hestinum“ eins og kom fram á heimasíðu Landsmóts.

Heimsmet í tölti

Ásmundur Ernir Snorrason og Hlökk frá Strandarhöfða slógu heimsmet í tölti með 9,78 í aðaleinkunn í A úrslitum. Sú einkunn er heimsmet en aldrei fyrr hefur sama atriðið hlotið fjórar 10 frá dómurum.

Þráinn frá Flagbjarnarholti hneppti Sleipnisbikarinn en hann var efstur stóðhesta með heiðursverðlaun fyrir afkvæmi þetta árið. Ræktendur Þráins, Jaap Groven og Yvonne Groven, og meðeigendur þeirra í Þráinsskildi tóku við verðlaununum en Sleipnisbikarinn er ein virtasta viðurkenning sem veitt er í íslenskri hrossarækt og talinn æðsti heiður sem kynbótastóðhestar geta hlotið.

Orrabikarinn hlaut stóðhesturinn Hannibal frá Þúfum sem fékk fyrstu verðlaun fyrir afkvæmi og þykir árangurinn endurspegla gæði afkvæma hans og markvisst ræktunarstarf sem stendur að baki honum. Íbishóll varð sigurvegari ræktunarbúa í annað sinn.

Sindri frá Hjarðartúni og Hans Þór Hilmarsson, landsmótssigurvegarar í A-flokki.

Framúrskarandi hestamennska

Jóhanna Margrét Snorradóttir hlaut Gregesen-styttuna þetta árið og er sú stytta veitt til minningar um Ragnar Gregesen sem þótti fyrirmynd bæði þegar kom að umhirðu hrossa og prúðmannlegri framkomu. Verðlaunin eru virt viðurkenning á Landsmóti og leggja áherslu á þau gildi sem einkenna góða hestamennsku innan vallar og utan.

Jóhanna þótti skara fram úr fyrir reiðmennsku, snyrtimennsku og fagmennsku í umgengni við hross sín en hún sýndi fjölda hesta á mótinu.

Viktoría Huld Hannesdóttir og Þinur frá Enni, sigurvegarar í barnaflokki.

Hlaut þrenn verðlaun

Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal átti þrjá sigra á mótinu. Guðmar og Kalsi frá Þúfum sigruðu A-flokk ungmenna, ásamt Gretti frá Hólum vann hann einnig í B-flokki ungmenna og hlaut hann síðan ÖDER bikarinn sem var veittur á Landsmóti í þriðja sinn í ár.

ÖDER bikarinn er veittur framúrskarandi knapa og hesti sem standa fyrir glæsileika og fegurð í íslenskri reiðmennsku og var stofnaður til minningar um Einar Öder Magnússon sem var í fararbroddi i íslenskri hestamennsku og lagði áherslu á tengslin milli hests og knapa.

Jakob Svavar Sigurðsson og Kór frá Skálakoti sigruðu í B-flokki með aðaleinkunnina 9,19. Viktoría Huld Hannesdóttir og Þinur frá Enni unnu í barnaflokki með aðaleinkunn 9,06 og vörðu með því titilinn frá síðasta Landsmóti.

Gabríel Liljendal Friðfinnsson og Ólsen frá Egilsá sigruðu unglinga- flokkinn og Hannes Sigurjónsson og Heiður frá Eystra-Fróðholti sigruðu B-flokk áhugamanna.

Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni á Þelamörk sigurvegarar í 250m skeiði.

Friðsemd fljótust

Eyrún Ýr Pálsdóttir og Friðsemd frá Kópavogi fóru 100 metra sprettinn hraðast á 7,46 sekúndum. Konráð Valur Sveinsson og Kastor frá Garðshorni voru fyrstir í mark í 250 metra skeiði á 22,18 sekúndum og var Konráð einnig fyrstur í mark í 150 metra skeiði en þá á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II á 13,84 sekúndum.

Félag tamningamanna (FT) veitti heiðursviðurkenningar á mótinu en þar hlaut Brynja Kristjánsdóttir Reiðmennskuverðlaun FT og Ásmundur Ernir Snorrason og Elin Holst hlutu FT-Fjöðrina. Bændablaðið óskar öllum Landsmótssigurvegurum til hamingju með árangurinn. 

Skylt efni: Landsmót hestamanna

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...