Uppskeruhátíð og menningin, maður minn
Mynd / Hafliði Halldórsson
Matarkrókurinn 2. október 2026

Uppskeruhátíð og menningin, maður minn

Höfundur: Hafliði Halldórsson

Mér yrði seint fyrirgefið af okkar kæru sauðfjárbændum ef kjötsúpan myndi gleymast í sjálfu Bændablaðinu einmitt núna þegar göngur og réttir standa yfir um allt land. Því að búskapurinn með réttirnar sem hápunkt er auðvitað stór hluti af okkar alþýðumenningu sem nánast allir Íslendingar þekkja, vilja snerta á og kenna börnunum að skilja og taka þátt í. Því að hér ná margir þéttbýlisbúarnir nauðsynlegri jarðtengingu og skilningi á vinnu bænda í ys og þys nútímans. Við skulum ekki vanmeta þessa tengingu og skilning, og ekki heldur hefðirnar sem fylgja lambakjötinu og sláturtíðinni sem setur punktinn yfir. Þar kemur auðvitað kjötsúpan inn en hún er oftar en ekki einmitt maturinn sem svangir gangnamenn gæða sér á þessa dagana. Kjötsúpan er þjóðargersemi sem tengir okkur við góðar minningar og stað og stund í faðmi fjölskyldu og vina. Enda sennilega engin máltíð eins nærandi og seðjandi að loknu góðu dagsverki og jafnvel slarki í misjöfnu veðri.

Samtal um kjötsúpu er menning

Enginn réttur held ég að fái eins mikla umræðu á milli fólks sem annars er ekki mikið að velta fyrir sér hvernig maturinn er tilreiddur. Kjötsúpan á að vera nákvæmlega rétt gerð og ekkert fúsk. Enda er hin eina hárrétta uppskrift að kjötsúpu til á hverju einasta íslenska heimili og aðrar útfærslur dæmdar sjálfkrafa úr leik í oft hádramatískum umræðum í hreintrúarstíl um rétt og rangt. Þetta kann ég vel við því að svona umræður heyrast því miður alltof sjaldan hér heima. Hins vegar getur góður leigubílstjóri á Ítalíu rifist við farþega um rangt og rétt í því hvaða hráefni eigi að nota í uppáhalds réttinn og hvernig eigi að elda. Sem oftar en ekki er byggt á uppskriftinni hennar ömmu, hefðum og um leið matarmenningu sem er lifandi af því að fólk lætur sig hana varða.

Uppskeruhátíð í súpuskál

Haustið á Íslandi er kjörinn tími fyrir kjötsúpur af ýmsu tagi, þegar sláturtíð og uppskera íslenska grænmetisins mætast á kjötsúpan sviðið. Ég hvet lesendur til að elda, bjóða og borða íslenska kjötsúpu í fjölbreyttum útfærslum. En gætið þess samt að uppskriftin sé sú rétta! Ég leik mér reglulega með uppskriftir að kjötsúpunni þó að grunnurinn sé oftast svipaður og læt eina slíka sem þið getið leikið ykkur með líka.

Sjálfur kann ég betur við að nota ríkulega af fersku grænmeti heldur en að notast við þurrkaðar súpujurtir og hef ekki fengið skammir fyrir á mínu heimili. En þessi hegðun mín þykir mörgum ferlegt frávik frá hefðum enda alls óvíst að amma hafi haft sama aðgang að nýju grænmeti og við njótum. En súpujurtir notum við samt stundum, allt eftir efnum og aðstæðum hverju sinni. Á þessum árstíma er flest íslenskt útiræktað grænmeti til í verslunum og sjálfsagt að nýta þann lúxus til fulls á meðan birgðir endast.

Kjötsúpa með fersku grænmeti

1 kg súpukjöt

2,5 l vatn

50 g íslenskt bankabygg

4 stk. nýjar kartöflur

3–4 stk. gulrætur

1–2 rófur

1–2 hnúðkál

1/2 haus toppkál eða hvítkál

2 laukur

½ blaðlaukur

3 stönglar sellerí

1 hvítlauksrif

2–3 blöð grænkál

2 msk. skessujurt

eplaedik

íslenskt sjávarsalt

pipar

Byrjið á að skola lambakjötið vel og nuddið af beinasag, setjið síðan í rúman pott og hellið vatninu yfir, stillið á miðlungshita og bíðið eftir suðu. Á meðan að suðan er að koma upp er grænmetið undirbúið, skerið nýjar kartöflur, gulrætur og hnúðkál í grófa munnbita. Skerið sellerístönglana svo í grófa bita. Saxið hvítlauk fínt og lauk, blaðlauk, grænkál og toppkál í grófa bita. Þegar suðan er komin upp og hefur soðið í nokkrar mínútur, fleytið þá froðuna sem kemur á yfirborðið af. Saltið og sjóðið í 20 mínútur og bætið við kartöflum, byggi, hvítlauk, lauk, sellerístönglum og gulrótum. Sjóðið í 30 mín. Bætið hnúðkáli, grænkáli, toppkáli, skessujurt og blaðlauk við og sjóðið í 10 mínútur þar til grænmetið er eldað í gegn. Smakkið súpuna til með salti og pipar og epladiki áður en þið berið súpuna fram.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f