Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Umhirða skógarplantna sem bíða gróðursetningar
Á faglegum nótum 12. maí 2026

Umhirða skógarplantna sem bíða gróðursetningar

Höfundur: Rakel J. Jónsdóttir
Rakel J. Jónsdóttir.

Nú nálgast vorið og skógarfólk fer að huga að því að taka á móti plöntum til nýgróðursetningar. Skógarplöntur eru í raun viðkvæm vara sem þarf að hlúa vel að eigi árangur gróðursetningar að skila sér. Eftir því sem þeim er sýnd meiri natni með daglegri vöktun, því meiri líkur eru á að þær haldi gæðum sínum og að afföllum eftir gróðursetningu frekar afstýrt.

Flutningur. Í fyrsta lagi þarf að huga að því að flytja skógarplöntur alltaf í lokuðu rými. Við flutning á opinni kerru verða plöntur fyrir gríðarmikilli útgufun úr barri eða laufi, svo mikilli að það getur stórskaðað smávaxnar plöntur, jafnvel þó leiðin sé stutt.

Undirlag. Ef plöntur í bökkum þurfa að bíða gróðursetningar þarf að koma þeim fyrir á skjólgóðum stað á sléttu og hörðu undirlagi. Raða á bökkunum þétt saman svo útgufun frá þeim verði sem minnst. Ef loftar undir eða á milli bakkanna vegna óslétts undirlags eykst útgufun, auk þess sem vatn rennur þá af þeim í stað þess að síga niður í rótarhnausana. Gott er að nota timburplanka til þess að verja kanta á bakkabreiðunni því þar þorna plöntuhnausarnir fyrst.

Staðsetning. Betra er að staðsetja bakkaplöntur í skugga, fremur en að hafa þær sunnan undir vegg þar sem sólarinngeislun er mest. Í skugga dregur úr vökvunarþörf en þó ætti aldrei að geyma plöntur í útihúsi eða skemmu því dagsbirtan er plöntum nauðsynleg til orkusöfnunar.

Vökvunarþörf. Til þess að meta hvenær skuli vökva er best að handfjatla rótarhnausa plantnanna. Ef rótarhnaus er kreistur létt og vatn rennur úr honum er ekki þörf á að vökva. Sé rótarhnaus hins vegar léttur og þurr viðkomu er ráðlegt að vökva. Gott er að byrja á að meta raka í hnausum næst kanti bakkabreiðunnar og meta svo þá sem eru innar, því stundum þarf bara að vökva kanta breiðunnar. Þá má nota stút framan á slöngu til þess að vökva kantinn en sleppa því að láta úðarann ganga yfir alla bakkabreiðuna. Rata þarf gullinn meðalveg í vökvuninni því hægt er að vökva of mikið og of oft. Best er ef lauf og barr fær að þorna milli þess sem vökvað er því þá er minni hætta á því að grámygla nái sér á strik. Hún þrífst best í hita og raka.

Vökvun. Best er að nota vökvunarúðara sem dreifir vatni jafnt yfir til þess að tryggja að raki sé í lagi á allri bakkabreiðunni. Huga þarf að vindátt áður en byrjað er að vökva og staðsetja vökvunarúðarann með tilliti þess. Nota svo sömu aðferð og lýst er hér að ofan til þess að metaa hvenær búið er að vökva nóg. Kreista nokkra rótarhnausa létt og ef dropar úr þeim er búið að vökva nóg.

Dagleg vöktun. Best er að gróðursetja plöntur sem allra fyrst eftir afhendingu en á meðan þær bíða gróðursetningar verður að huga að þeim á hverjum degi, sérstaklega þegar sólríkt er, og hafa í huga að þó að smáskúrir komi annað slagið er það mögulega ekki nóg til þess að væta vel í bökkunum.

Höfundur er sérfræðingur hjá Landi og skógi.

Skylt efni: Land og skógur

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.