Samræming í söfnun og flokkun er talin nauðsynleg á Norðurlöndum svo bjarga megi þeim verðmætum sem felast í ullinni sem hráefni.
Samræming í söfnun og flokkun er talin nauðsynleg á Norðurlöndum svo bjarga megi þeim verðmætum sem felast í ullinni sem hráefni.
Mynd / Axfoundation
Utan úr heimi 19. mars 2026

Um 2.400 tonnum af ull fargað

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Á hverju ári er meira en 2.400 tonnum af ull fargað á Norðurlöndunum. Ísland hefur reyndar þá sérstöðu að hér er nánast öll ull nýtt.

Í nýjum skýrslum Nordic Wool Initiative er greint frá þessum niðurstöðum úr rannsókn á stöðu mála. Þar segir að allt að 120 milljónir evra tapist árlega vegna þess að ullarverðmætin eru ekki að fullu nýtt.

Mest fellur til í Noregi

Mest fellur til af ull í Noregi eða um 3.387 tonn árlega. Af því magni er um 40% fargað. Í Svíþjóð falla til 1.136 tonn og þar af er helmingi fargað. Á Íslandi falla til tæplega 760 tonn af óunninni ull árlega og nánast allt unnið á Íslandi eða selt úr landi.

Í Danmörku er um 70 til 80% fargað af þeirri ull sem fellur, en heildarmagn er talið vera um 320 tonn. Finnar farga einnig um 70 til 80% af því heildarmagni sem fellur til, sem talið er vera um 289 tonn.

Í skýrslunum frá Nordic Wool Initiative segir að þetta þýði tapaðar tekjur fyrir bændur, sem gerist á sama tíma og eftirspurn eftir staðbundnu, lífrænu og rekjanlegu hráefni heldur áfram að aukast.

Á síðasta áratug hefur ullarframleiðsla á Norðurlöndunum dregist saman og er norræn ullarframleiðsla aðallega stunduð sem aukabúgrein með kjötframleiðslu.

Meirihluti ullar á heimsmarkaði kemur frá Ástralíu og Nýja-Sjálandi, þar sem framleiðslan er stórfelld og verðið því lægra.

Skortur á samræmdri söfnun og flokkun

Í skýrslunum er enn fremur komist að þeirri niðurstöðu að vandamálið snúist ekki um gæði ullarinnar, heldur skort á sameiginlegum flokkunarkerfum, samræmdri söfnun og efnahagslegum hvötum. Nefnt er sem dæmi að möguleikar á meiri nýtni séu mögulegir. Noregur hafi sýnt fram á það, en í dag er um 90% af norskri ull safnað með landskerfi.

Í öðrum Norðurlöndum fer mikið magn af ull aldrei inn í skipulagða virðiskeðju. Í skýrslunum er bent á sameiginlegan norrænan ullarstaðal sem hagnýtt tæki við flokkun og til að auka gagnsæi og styrkja arðsemi sauðfjárbænda. Skýrslurnar benda einnig á þörfina fyrir stefnumótunaraðgerðir sem gera meðhöndlun ullar efnahagslega hagkvæma fyrir bændur.

Skylt efni: ull | utan úr heimi | norðurlönd

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...