Glaðbeittar hannyrðakonur.
Glaðbeittar hannyrðakonur.
Mynd / Aðsend
Fréttir 28. september 2026

Ullarvika í fjórða sinn

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Ullarvikan á Suðurlandi verður haldin hátíðleg dagana 27. september–3. október nú í ár. Þessi viðburður sem nú er haldinn í fjórða sinn fagnar íslensku sauðkindinni, ullinni og handverkinu. Hátíðin er að mestu skipulögð af sjálfboðaliðum á svæðinu, þar á meða Spunasystrum í Rangárvallasýslu og Þingborgarkonum í Árnessýslu.

Dagskráin teygir sig um allt Suðurland, frá Selfossi til Kirkjubæjarklausturs, og fer fram í félagsheimilum, handverksstofum og á sauðfjárbúum. Fjölbreyttir og opnir viðburðir eiga sér fastan sess á hátíðinni. Má þar nefna prjónamessu í Árbæjarkirkju, (Rang) sauðfjárlitasýningu í Árbæjarhjáleigu, verðlaunaafhending, rúningu, prjónakaffi og markaði. Jafnframt kenna innlendir og erlendir sérfræðingar á fjölmörgum námskeiðum þar sem farið er m.a. í prjón, vefnað, jurtalitun og þæfingu. 

Meginmarkmið Ullarvikunnar er að auka virðingu fyrir íslenska lopa- og garnferlinu og sýna þá miklu vinnu og natni sem bændur leggja í ræktun og umhirðu fjárins. Allir þættir í lífi kindarinnar – svo sem fóður, heilsa, aldur og veðurfar – hafa afgerandi áhrif á gæði ullarinnar. Með því að leiða saman bændur, prjónafólk og almenning býður hátíðin upp á dýrmætt tækifæri fyrir fólk úr borgum og bæjum til að komast í návígi við sauðfé og kynnast fjölbreyttum eiginleikum ullarinnar.

Dagskrá ullarvikunnar má finna á www.ullarvikan.is. 

Skylt efni: hannyrðir | Ullarvika

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...