Það skemmtilega við að nota súpuduft í ídýfu er að það er auðvitað til fjöldinn allur af bragðtegundum og um að gera að nýta haustið til að smakka dýfu úr þeim öllum. Blanda jafnvel saman. Á þessari mynd eru dýfur úr púrrlaukssúpu og tómasúpu. Saman og í sundur. Auðvitað er svo alveg bannað að tvídýfa – djók það má dýfa eins oft og hugurinn girnist heima hjá sér.
Það skemmtilega við að nota súpuduft í ídýfu er að það er auðvitað til fjöldinn allur af bragðtegundum og um að gera að nýta haustið til að smakka dýfu úr þeim öllum. Blanda jafnvel saman. Á þessari mynd eru dýfur úr púrrlaukssúpu og tómasúpu. Saman og í sundur. Auðvitað er svo alveg bannað að tvídýfa – djók það má dýfa eins oft og hugurinn girnist heima hjá sér.
Mynd / Hari
Matarkrókurinn 17. september 2026

Tvídýfa

Höfundur: Haraldur Jónasson

Stundum verður það bragðbesta til af slysni eða af hreinni tilviljun. Eins og vínarbrauð og hass-avókadóið. Heima hjá mér er það yfirleitt leti og eða níska. Það á við um ídýfu sem varð til nú fyrir stuttu. Hún byrjaði sem kryddblanda í partíkjötbollur og endaði sem það eina sem gestirnir vildu fá uppskriftina að.

Á persónulegum nótum, ef ég mætti vera svo djarfur hér á síðum Bændablaðsins, hef ég aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af ídýfum.

Eðlur og salsa hef ég brúkað en dýfur kenndar við örstutta firði – ekki svo mikið. Mér hefur fundist dýfurnar auka á versta eiginleika flögunnar, olíusteikinguna. Fæ hreinlega klígju eftir nokka bita.Hef reyndar heyrt af fólki sem dýfir grænmeti í hvítsósurnar, gæti þannig mögulega verið snilldin ein en ég hef ekki prófað það. Við þetta hef ég unað. Þangað til núna.

Bollubragð

Upphafið má sum sé rekja til þess að verið var að útbúa kjötbollur fyrir veisluhöld. Við slík tækifæri er gott að gera partíkjötbollurnar hennar Ingu frænku. Uppistaðan í þeim er pakkasúpa. Púrrlaukssúpa nánar til tekið. Þegar búið var að blanda bollurnar var smá dass eftir af íblöndunarefninu. Sem innihélt áðurnefnda súpu, saltkex, brauðrasp og sitthvað fleira.

Ég, eins og góðri húsmóður sæmdi, vildi ekki henda fullkomlega brúklegri blöndu og ákvað að gera snakkídýfu úr henni fyrir teitið. En þar sem ég var búinn að vera að slubbast með hrátt nautahakk í kringum blönduna ákvað ég að skutla henni inn í bakaraofn. Til að það væri pottþétt ekkert lifandi að fara út í dýfuna. Við þetta ristaðist brauðraspurinn og kexið og úr varð enn kraftmeiri þurrblanda. Hún fór svo út í blöndu af sýrðum rjóma, mæjónesi og slettu af rjómaosti, af því að það var líka verið að gera ostaköku. Sú gleymdist reyndar inni í kæliskáp en það eru önnur saga.

Blautt og þurrt

Svona gerum við þetta: Blöndum saman þurrefnunum. Það er hægt að gera mikið og það er hægt að gera lítið. Best að slumpa þetta í rúmmálshlutum. Sirka ½ hluti brauðraspur, ½ hluti saltkex á móti 2 hlutum af pakkasúpu. Þetta fer inn í 150 gráðu heitan ofn á blæstri.

Þegar raspurinn og kexið byrja að brúnast fer blandan út í mortel eða matvinnsluvél til að gera úr henni duft. Næst er hægt að auka magn einhvers krydds. Þarf ekki en getur verið gott. Sirka 1/8 hluti og þurrkaðra kryddjurta, 1/5 hluti. Saltkexið, súpan og flagan sjálf sjá um saltið.

Blauti hlutinn samanstendur af 2 hlutum af mæjónesi og 2 hlutum af sýrðum rjóma. Blandað saman við ½ hluta af rjómaosti. Brauðraspið og kexið þykkja blönduna óhóflega þannig að gott getur verið að þynna hana út með sirka ½ hluta af mjólk eða rjóma, jafnvel smá sítrónusafa. Annars gæti viðkvæm flagan átt það til að brotna í herlegheitunum.

Gott að gera tilraunir með magn af hvoru fyrir sig, því blauta og þurra. Góð byrjun er 15 grömm af þurru út í 100 grömm af blautu. Sirka ein matskeið út í desilítra af blauta. Tæknilega er ídýfan tilbúin þegar búið er að hræra henni saman. Verður svo bara betri eftir því sem fleiri klukkutímar líða.

Geymist í kæliskáp í lokuðu íláti í tvo, þrjá daga.

Ídýfa

1,4 dl (sirka)

½ dl sýrður rjómi 18%

½ dl mæjónes

1 msk. rjómaostur

1 msk. vökvi (rjómi/mjólk)

1 tsk. brauðrasp

1 tsk. saltkex (mulið)

2 tsk. pakkasúpa

1/4 tsk. þurrkað origano (eftir smekk)

1/8 tsk. hvítlauksduft (eftir smekk)

Verði ykkur að góðu.

Skylt efni: matarkrókur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f