Vinningshafar á Norðurlandameistaramótinu í eldsmíði, Beate Stormo, Þröstur Sigmundsson og Guðmundur Sigurðsson.
Vinningshafar á Norðurlandameistaramótinu í eldsmíði, Beate Stormo, Þröstur Sigmundsson og Guðmundur Sigurðsson.
Mynd / Aðsend
Fréttir 10. ágúst 2026

Þröstur Norðurlandameistari

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Norðurlandameistaramót í eldsmíði fór fram dagana 11.14. júní síðastliðinn í Tidaholm í Svíþjóð. Þröstur Sigmundsson, sem býr í Reykjanesbæ, gerði sér lítið fyrir og varð Norðurlandameistari í opnum flokki.

Beate Stormo úr Eyjarfjarðarsveit og Guðmundur Sigurðsson frá Akranesi náðu einnig mjög góðum árangri í sínum flokkum og urðu bæði í þriðja sæti.

Félag eldsmiða á Íslandi er með smiðju á Akranesi en félagið stendur fyrir og tekur þátt í ýmsum viðburðum, eins og opnum smiðjum, námskeiðum, sýnikennslu og uppákomum á söfnum og hátíðum alls konar.

„Eldsmíði á sér djúpar rætur í íslenskri sögu allt frá landnámi. Landnámsmenn komu með þekkingu á járnsmíði sem varð grundvöllur fyrir lífi og samfélagi í nýju landi. Smiðir sköpuðu nauðsynleg verkfæri, hnífa og búnað til daglegs lífs, allt mótað með eldi, járni og handverki,“ segir Þröstur stoltur með Norðurlandameistaratitilinn sinn.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...