Mikill fjöldi fólks sótti fjölmenningarhátíðina á síðsta ári, sem fór þá fram í íþróttahúsinu á Hvolsvelli.
Mikill fjöldi fólks sótti fjölmenningarhátíðina á síðsta ári, sem fór þá fram í íþróttahúsinu á Hvolsvelli.
Mynd / Aðsend
Fréttir 30. apríl 2026

Þrjátíu þjóðerni í Rangárþingi ytra

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Laugardaginn 9. maí verður fjölmenningarhátíð haldin í íþróttahúsinu á Hellu frá klukkan 14:00.

Um 20 þjóðerni munu kynna sitt land og sína menningu á hátíðinni. „Markmið hátíðarinnar er að efla sýnileika fjölmenningar, skapa vettvang fyrir íbúa til að kynna menningu sína og stuðla að samkennd, þátttöku og inngildingu í samfélaginu,” segir Jóhann G. Jóhannsson, Íþrótta- og fjölmenningarfulltrúi hjá Rangárþingi ytra.

Í Rangárþingi ytra eru um 30 þjóðerni af fólki eins og frá Spáni, Danmörku, Taílandi, Litáen og Portúgal svo einhver lönd séu nefnd. „Þátttakendur verða styrktir af sveitarfélaginu og einnig af SS og Holta, sem munu leggja til kjöt og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. Þetta er samstarf Rangárþings ytra og eystra en hátíðin var haldin af eystra í fyrra á Hvolsvelli og heppnaðist gríðarlega vel. Við reiknum með mörg hundruð gestum á hátíðina 9. maí”, bætir Jóhann við.

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...