Svokallað umræðuskjal
Leiðari 25. júní 2026

Svokallað umræðuskjal

Höfundur: Þröstur Helgason

Umræður um þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu eru nú farnar að taka á sig skýrari mynd. Auðvitað markast þær af því að tvær andstæðar fylkingar takast þar á með fremur óvægnum hætti. Hætt er við því að í slíku ástandi verði til gróðrarstía fyrir upplýsingaóreiðu, falsfréttir og áróður. Það er hlutverk fjölmiðla að varast slíka umræðu og leggja fram áreiðanlegar upplýsingar svo að almenningur geti mótað með sér upplýsta skoðun. Hið sama ættu opinberar stofnanir að gera, enda hverju ætti almenningur að treysta ef ekki upplýsingum frá opinberum stofnunum?

Á hinu síðarnefnda eru því miður undantekningar sem nauðsynlegt er að benda á. Samkeppniseftirlitið sendi fyrir stuttu frá sér svokallað umræðuskjal um matarverð á Íslandi, þróun og alþjóðlegan samanburð. Umræðuskjal er sjálfsagt réttnefni því að þetta framlag Samkeppniseftirlitsins hefur vakið afar hörð og gagnrýnin viðbrögð en um leið er þetta orð kannski líka valið vegna þess að efni skjalsins stenst ekki þær kröfur sem hlutlausar skýrslur hins opinbera kalla á.

Í skjalinu segir að Íslendingar greiði 55% meira fyrir matvöru en íbúar í Evrópu. Þessa tölu má til sanns vegar færa en þessa fullyrðingu verður að skoða í samhengi ef hún á að vera tækt framlag til upplýstrar umræðu. Í henni er horft fram hjá öllum kostnaði við framleiðslu matvæla en hann hefur hækkað verulega hérlendis á undanförnum árum. Þar má meðal annars vísa til launakostnaðar, áburðarkostnaðar, fóðurkostnaðar, orkukostnaðar og opinberra gjalda af ýmsu tagi. Það er með öðrum orðum talsvert dýrara að framleiða mat hér á Íslandi en víðast annars staðar í Evrópu. En á móti kemur að laun á Íslandi eru með þeim hæstu sem bjóðast í Evrópu og því hefur fólk efni á því að greiða hærra verð fyrir mat hér en annars staðar í Evrópu. Kaupmáttur á Íslandi er með öðrum orðum einn sá mesti sem mælist í álfunni. Væru Íslendingar á evrópskum launum þá væru þeir vissulega illa staddir, en á íslenskum launum ráða landsmenn vel við íslenskt matarverð, raunar betur en íbúar í meirihluta annarra landa Evrópu. Hér er hlutfallslegur kostnaður heimila vegna matarinnkaupa nefnilega milli þrettán og fjórtán prósent af heimilisútgjöldum, sem er undir meðaltali ESB. Annað er svo að benda á búvörusamninga frá 2024 sem skýringu á hækkuðu kjötverði árin 2020 til 2025 þegar höfundar skjalsins vita að undanþága frá samkeppnislögum sem samningarnir kváðu á um komst ekki til framkvæmda fyrr en einmitt árið 2025. 

Framsetning Samkeppniseftirlitsins á tölulegum staðreyndum er að minnsta kosti vafasöm í svokölluðu umræðuskjali. Framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði sagði í Útvarpi Bændablaðsins í liðinni viku framsetninguna raunar hvorki vandaða né líklega til að auka skýrleika í umræðunni. Og það er auðvitað ekki gott þegar um er að ræða opinbera stofnun sem almenningur þarf að geta reitt sig á þegar kemur að vandaðri meðferð og miðlun upplýsinga. Umræða síðustu vikna hlýtur að vekja fólk til umhugsunar um það á hvaða vegferð þessi stofnun er og hvers vegna hún telur það sitt hlutverk að hafa áhrif á opinbera umræðu með þessum hætti. 

Bændablaðið mun leggja sig fram um að vanda málflutning, upplýsingaöflun og -miðlun á næstu vikum svo að almenningur geti tekið upplýsta ákvörðun í lok sumars um það hvort hefja eigi á ný viðræður við Evrópusambandið. Vonandi þarf ekki að standa í frekara stagli við ríkisstofnanir um að vanda sinn málflutning fram að kosningum.

Þröstur Helgason

Skylt efni: Leiðari

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.