Google ruddi skóga ólöglega í norðurhluta Finnlands til að hefja byggingu gervigreindargagnavers.
Google ruddi skóga ólöglega í norðurhluta Finnlands til að hefja byggingu gervigreindargagnavers.
Utan úr heimi 11. nóvember 2026

Skógareyðing Google fyrir gagnaver

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Google hjó 250.000 tré ólöglega í Muhos í Finnlandi til að byggja gervigreindargagnaver. Fyrr í mánuðinum stöðvaði Leyfisveitinga- og eftirlitsstofnun Finnlands (LVV) framkvæmdir Google á tveimur stöðum í Finnlandi, Muhos og Otanmäki, þar sem umhverfismat lá ekki fyrir á svæðunum. Atvikið hefur vakið hörð viðbrögð í landinu.

Finnland er eftirsóknarverð staðsetning fyrir gagnaver vegna kalds loftslags sem stuðlar að lægri orkukostnaði þar sem ekki þarf að nota jafnmikla orku í kælingu. 145 gagnaver eru í kortunum þarlendis sem stjórnmálamenn líta á sem sóknarfæri en umhverfissinnar sem áhyggjuefni.

Kalla eftir hertum reglugerðum

Rúmlega 93.000 manns hafa skrifað undir yfirlýsingu sem kallar eftir harðari reglum um gagnaver og að nærsamfélög fái umhverfistjónið bætt fjárhagslega. Engin fordæmi eru fyrir því að fyrirtæki brjóti lög með þessum hætti í Finnlandi. Í frétt á vef breska miðilsins Guardian kemur fram að Hanna Halmeenpää, formaður Finnska nátttúruverndarsambandsins (SLL), kallar athæfið hrokafullt og segir fyrirtækið hafa misnotað það traust sem finnska kerfið byggi á.

Google hefur fjárfest 13 milljörðum evra, sem nemur um 1.733 milljörðum íslenskra króna, í gervigreindarinnviði í Finnlandi og er nú að byggja þrjú gagnaver í landinu. Petteri Orpo, forsætisráðherra landsins, hefur meðal annars haldið því fram að fjárfesting Google væri forgangsatriði og að mikill ávinningur fengist af því að hýsa gagnaver fyrirtækisins. Í tilkynningu Google segir að gagnaverin muni skapa um 37.000 störf meðan á byggingu þeirra stendur, sem reiknað er með að sé um eitt ár. Ekki er tekið fram hversu mörg störf gagnaverin eigi að skapa þegar þau eru gangsett en segir í tilkynningunni að þau hlaupi á einhverjum þúsundum.

Jussi Kangasharju, forseti tölvunarfræðideildar Háskólans í Helsinki, segir ávinninginn verða lítinn fyrir finnskt samfélag þar sem hann telji að starfsemin muni að endingu skapa fá störf, að fyrirtækið sé aðallega með alþjóðlega viðskiptavini og borgi ekki fullan skatt.

Jarðvegurinn strípaður

Ásamt því að fella tré var jarðvegurinn ruddur svo að gróðurmoldin, efsta lag jarðvegsins, var tekin af. Íbúar í nágrenni svæðisins segja brúnt vatn flæða af svæðinu og í ána Oulujoki sem er þar rétt hjá. Reiknað er með að 150.000 tré hafi einnig verið hoggin í Otanmäki, hinu svæðinu sem LVV skipaði að stöðva framkvæmdir á. Þar eru áhrifin af skógareyðingunni áþreifanleg og villt dýr þurftu að flýja skóginn, til að mynda flykktust úlfar úr skóginum inn í nálæg þorp. Fuglar sem búa í skóginum hafa einnig yfirgefið heimkynni sín. Þá hafa íbúar á svæðinu áhyggjur af hávaða frá gagnaverinu og að svæðið yrði skotmark Rússa ef kæmi til átaka.

Svæðisstjóri Google í Finnlandi, Antti Järvinen, hefur beðist afsökunar en segir fyrirtækið hafa skilið löggjöfina öðruvísi. Málið er til rannsóknar hjá LVV og hjá finnsku lögreglunni sem fékk fyrst tilkynningu um mögulegt ólöglegt skógarhögg um þarsíðustu mánaðamót.

Google vinnur nú að því að vernda gæði vatns í kringum framkvæmdasvæðið við Muhos og hefur lofað því að planta 130 hekturum trjáa. Náttúruverndarsinnar segja það framtak of lítið sem og að það sé ekki í neinu samræmi við skaðann sem sé skeður.

Skylt efni: Finnland | google

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f