Orkukerfið á þaki reiðhallarinnar samanstendur af 340 sólarsellum og er tengt við stóra rafhlöðuorkugeymslu.
Orkukerfið á þaki reiðhallarinnar samanstendur af 340 sólarsellum og er tengt við stóra rafhlöðuorkugeymslu.
Mynd / Aðsend
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver landsins að finna á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi. Ábúendur ákváðu að fara þessa leið og afla endurnýjanlegrar orku í gegnum 340 sólarsellur þar sem rafmagnsreikningurinn var orðinn mjög hár í búrekstrinum.

Jóhanna Ásgeirsdóttir og Agnar Gestsson búa á Lýsuhóli, sem er í Staðarsveit, ásamt börnum, en þau tóku við búinu af foreldrum Jóhönnu árið 1993.

Agnar Gestsson og Jóhanna Ásgeirsdóttir búa á Lýsuhóli og reikna með að orkuverið á þaki reiðhallarinnar borgi sig upp á sex til sjö árum.

Tilvonandi tengdasonur orkuverkfræðingur 

„Á þessum rúmu þrjátíu árum höfum við byggt upp starfsemina og stækkað ferðaþjónustuna mikið. Í dag eru um 130 hross á Lýsuhóli, auk þess sem við rekum hótel með 12 herbergjum og nokkrum sumarbústöðum. Lýsuhóll er fjölskyldufyrirtæki, Halla, dóttir okkar, Jóhann, tilvonandi tengdasonur okkar, og börnin þeirra taka virkan þátt í rekstrinum. Jóhann er menntaður orkuverkfræðingur frá Þýskalandi, svo við búum yfir góðri þekkingu á orkumálum innan fjölskyldunnar,“ útskýrir Agnar.

Hann segir að eftir því sem starfsemin hafi stækkað í gegnum árin hafi rafmagnsnotkunin einnig aukist.

Vilja þróast á sjálfbæran hátt

„Rafmagnsreikningurinn var orðinn mjög hár og það var ein af ástæðum þess að við fórum að skoða sólarorku. Við vorum búin að velta fyrir okkur vindorku og vatnsorku, því okkur finnst verkefnið líka snúast um ábyrgð gagnvart framtíðinni,“ segir Agnar og bætir við að segja megi að þau séu bæði sólar- og vindmegin í lífinu í Staðarsveitinnni.

„Okkur þykir vænt um náttúruna hér á Lýsuhóli og viljum að fjölskyldufyrirtækið þróist á umhverfisvænan og sjálfbæran hátt. Við viljum nýta orkuna betur og gera það sem við getum gert til að reksturinn verði sjálfbærari. Sólarorkan er spennandi skref í þá átt og við erum spennt að sjá hvernig þetta kemur út á ársgrundvelli.“

Agnar vonast til að verkefnið geti bæði lækkað rafmagnskostnaðinn og hjálpað þeim við að nýta endurnýjanlega orku í rekstrinum. Kostnaður við verkefnið er áætlaður um 30 milljónir króna og þau reikni með að fjárfestingin borgi sig upp á sex til sjö árum.

Skylt efni: Snæfellsnes | Sólarorka

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...