Esa Härmälä í ræðustól á málþingi Bændasamtakanna.
Esa Härmälä í ræðustól á málþingi Bændasamtakanna.
Fréttir 14. ágúst 2026

Sérlausnin kom síðasta kvöld viðræðnanna

Höfundur: Þröstur Helgason

Esa Härmälä fór fyrir samninganefnd finnska utanríkisráðuneytisins um landbúnaðarmál í aðildarviðræðum Finna að Evrópusambandinu á fyrri hluta tíunda áratugarins. Hann sagði í erindi sínu á málþingi Bændasamtakanna um íslenskan landbúnað og ESB að reynsla Finna sýni að Evrópusambandið sé óviljugt til að veita varanlegar undanþágur frá sameiginlegri landbúnaðarstefnu sinni. "Síðasta kvöld samningaviðræðnanna náðum við að landa sérlausn fyrir finnskan landbúnað norðan við 62 breiddargráðu," sagði hann.
Hann sagði að viðræðurnar hefðu verið langar og strangar. Þær hafi tekið á líkamlega og andlega. "Við vorum ítrekað gerð afturreka með samkomulag sem við höfðum náð við samninganefnd ESB vegna þess að framkvæmdaráð sambandsins var ekki sátt. Þá þurftum við að byrja upp á nýtt. Og svo má segja að samningarnir séu í raun ekki fullnustaðir fyrr en þeir hafi verið skrifaðir inn í lög sambandsins. Í ljós kom að þar gátu samningarnir verið túlkaðir með allt öðrum hætti en við gerðum ráð fyrir. Þar fór því fram önnur samfélagsleg umræða í Finnlandi sem var á köflum ansi hörð."
Esa sagði að helsti lærdómurinn af öllu ferlinu hafi verið að það sé vænlegast til árangurs að kynna sér innviði evrópskrar lagasetningar og regluverks til hlítar. Þar er hægt að finna smugur til þess að nýta sér í vil við samningagerðina. Það sé vonlítið að ætla sér að ná einhverju í gegn sem ekki standi þar þegar. 

Skylt efni: esb | málþing

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f