Hjónin Páll Sigurvinsson og Hanna Björk Ragnarsdóttir fyrir utan plöntusölu sína á Hellissandi. Þar selja þau harðgerðar plöntur sem ræktaðar eru undir berum himni rétt utan við þorpið.
Hjónin Páll Sigurvinsson og Hanna Björk Ragnarsdóttir fyrir utan plöntusölu sína á Hellissandi. Þar selja þau harðgerðar plöntur sem ræktaðar eru undir berum himni rétt utan við þorpið.
Mynd / ál
Fréttir 10. ágúst 2026

Selja blóm, steina og tré

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Hjónin Páll Sigurvinsson og Hanna Björk Ragnarsdóttir hafa verið í plöntuframleiðslu á Hellissandi í um 40 ár, en þau reka Gróðrarstöðina Björk.

Páll segir starfsemi hjónanna ekki vera stórtæka, en þau sjái samt sem áður um ýmsa garða fyrir Snæfellsbæ og víðar. Þau eru með sölusvæði fyrir utan húsið sitt að Keflavíkurgötu 4 á Hellissandi á meðan framleiðslan er á lóð utan við þorpið. Þar rækta þau plöntur sem geta verið undir berum himni. Nýlega færðu þau út kvíarnar og opnuðu sölubás í Vogum á Vatnsleysuströnd þar sem þau fengu góðar viðtökur.

Páll Sigurvinsson og Hanna Björk Ragnarsdóttir selja svokallaða orkusteina sem þau tína í sameiningu á Snæfellsnesinu og Páll slípar í sérstakri vél í margar vikur

„Uppáhaldið er keisaraöspin og rifs,“ segir Páll aðspurður um sínar uppáhaldsplöntur. „Eins erum við með garðasól, en hún er svo seig og er sú planta sem fer fyrst af stað á vorin og endar síðust á haustin,“ segir hann. Aðrar plöntur sem þau selja eru meðal annars birki, sólber og strandavíðir. „Allar plönturnar eru harðgerðar og ræktaðar fyrir opnu, en við forræktum sumt í húsi,“ bætir Páll við.

Enn fremur eru hjónin að selja svokallaða orkusteina sem eru handverk úr fjörugrjóti. Þau tína steinana í sameiningu, en Páll sér um að slípa þá og gera úr þeim muni, eins og lyklakippur og hálsmen. Hann hefur unnið í þessu handverki í hátt í tuttugu ár og segir flesta steinana tínda í sömu fjörunni á Snæfellsnesinu. „Í dulrænum fræðum er talað um þetta sem draumasteina eða orkusteina, og það efast enginn um að Snæfellsnesið gefi steinunum þá orku,“ segir Páll.

„Eftir að steinarnir hafa verið tíndir set ég þá í tromlur þar sem þeir velta í sjö til átta vikur. Með veltingnum og efnunum sem sett eru í tromluna verða þeir glansandi mjúkir. Hver tromla tekur um fjögur kíló af steinum með vatni. Svo þarf ég að nota sérstaka bora ef ég ætla að festa eitthvað við steinana,“ segir hann. Hjónin segja steinana vinsæla meðal ferðamanna.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...