Sameinuðu þjóðirnar vara  við sýklalyfjaónæmi
Fréttir 18. júní 2026

Sameinuðu þjóðirnar vara við sýklalyfjaónæmi

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Sameinuðu þjóðirnar vara við því að notkun sýklalyfja í búfénaði gæti aukist um þriðjung á heimsvísu á næstu fimmtán árum ef ríki setji ekki skýrar reglugerðir.

Þetta kemur fram í skýrslu Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem kom út fyrstu vikuna í júní. Aukin notkun sýklalyfja í búfénaði eykur líkurnar á sýklalyfjaónæmi dýra og manna sem leiðir til þess að erfitt getur reynst að meðhöndla sýkingar sem og sýklalyfjaónæmar bakterírur geta borist beint og óbeint á milli manna og dýra og umhverfis.

Í skýrslunni kemur fram að ef núverandi þróun heldur áfram muni sýklalyfjanotkun í búfénaði ná 143.481 tonnum á heimsvísu árið 2040. Þetta sýnir 29,5% aukningu frá 2019 og fer vel fram úr síðasta hámarki sem náði 118.600 tonnum árið 2013.

Sýklalyf sem vaxtarhvatar

Þessar áhyggjur stafa ekki einungis af notkun sýklalyfja við sjúkdómum. Í sumum löndum þekkist að nota sýklalyf og önnur örverueyðandi lyf sem vaxtarhvata (e. Antibiotic Growth Promoter) til að hraða á þyngdaraukningu dýra eða stuðla að hagkvæmri nýtingu á fóðri. Þetta viðgengst enn víðs vegar um heiminn. Evrópusambandið bannaði notkun sýklalyfja sem vaxtarhvata í matvælaframsleiðslu aðildarlanda árið 2006 og frá 2023 hafa hertar reglugerðir tekið gildi um innflutning matvæla sem nota sýklalyf sem vaxtarhvata. Frá og með september 2026 tekur gildi nýr listi landa sem mega flytja inn dýraafurðir í Evrópusambandið. Lönd sem geta ekki sýnt fram á ræktun og framleiðslu dýraafurða án sýklalyfjavaxtarhvata munu ekki fá tilskilin leyfi.

Forvarnir og eftirlit

Aukið sýklalyfjaónæmi á heimsvísu hefur áhrif á fæðuöryggi, lýðheilsu, lífsviðurværi og hagkerfi. Til að komast hjá þessari þróun er mikilvægt að setja reglugerðir, hafa gott eftirlit með matvælaframleiðslu, upplýsa bændur og matvælaframleiðendur um áhættur sýklalyfjaónæmis og leggja áherslu á hagkvæmar aðferðir sem snúa að heilsu og fóðrun búfénaðar. Samkvæmt skýrslunni er mikilvægt að nálgast vandamálið frá mismunandi hliðum. Bændur sem huga vel að aðstöðu minnka líkurnar á því að þörf sé fyrir sýklalyf og matvælaframleiðendur sem grípa til aðgerða til að stuðla að ábyrgri sýklalyfjanotkun geta komið í veg fyrir fjárhagstjón vegna sjúkdómsfaraldra og smita í dýraafurðum. Sterkar forvarnaaðgerðir og sterkt net dýralæknaþjónustu koma einnig í veg fyrir sýklalyfjaónæmi.

Með lægsta móti á Íslandi

Á heimasíðu Matvælastofnunar kemur fram að sýklalyfjanotkun í dýrum er með lægsta móti á Íslandi í samanburði við önnur Evrópulönd en þó sé svigrúm til að gera enn betur. Mast hefur gefið út fræðsluefni á íslensku um hvað bændur og dýraeigendur geti gert í baráttunni við sýklalyfjaónæmi.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.