Meistarar Þriggja Frakka.
Meistarar Þriggja Frakka.
Líf og starf 4. nóvember 2026

Rosaleg blöð að norðan

Höfundur: Björn Þorláksson

„Það væri afrek að komast í þrjú grönd.“

Þetta sagði Ragnar Hermannsson stórspilari sem var landsliðsmanninum Magnúsi Magnússyni til halds og trausts sem lýsandi í Úrvalsdeildinni í bridds í spili níu í viðureign í Úrvaldeildinni í bridds fyrir skemmstu. Öll fljót lágu að mati þeirra sérfræðinganna í fjóra spaða í suður sem illu heilli eru beint niður með hjartadrottningu út eins og spilið liggur.

En hinir sjóðheitu norðlensku Guðmundur Halldórsson-Stefán Stefánsson í sveit glænýrra bikarmeistara, sem spiluðu sjónvarpsleikinn af snilld ásamt Gunnari Birni Helgasyni og landsliðsmanninum Stefáni Jóhannssyni, gegn Pressuliði, voru mjúkir á bárunni og vel með á nótunum í þessu spili sem öðru.

Á hinu borðinu gengu sagnir 1tígull1spaði-3tíglar-3-spaðar-4spaðar án þess að andstaðan léti í sér heyra.

Það væri afrek að komast í 3 grönd sagði Ragnar:

Sagnir fóru eins af stað hjá þeim en í stað þess að segja 3 spaða meldaði suður 3 hjörtu og þá var orðið upplagt fyrir norður að melda 3 grönd þar sem góðar líkur voru á laufi út upp í gaffalinn. 

„Þetta er rosalegt blað hjá Stefáni og Guðmundi,“ sagði Magnús um frammistöðu Norðlendinganna Guðmundar Tjörnesings og Stefáns frá Akureyri.

Og sömu sögu var að segja um ákvarðanir Stefáns Jó og Gunnars Björns. Enda unnu bikarmeistararnir leikinn stórt. Þrír Frakkar meistarar Sveit Þriggja Frakka varð Íslandsmeistari í sveitakeppni eldri spilara á dögunum. Í sveitinni spiluðu Guðmundur Sv. Hermannsson-Björn Eysteinsson, Þorlákur Jónsson-Guðmundur Páll Arnarson.

Þrjár af þessum fjórum kempum unnu heimsmeistaratitil árið 1991 og raða enn inn titlum! Til hamingju, drengir!

Umsjón: Björn Þorláksson,

bjornthorlaksson[hjá]gmail.com

Skylt efni: bridds

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...