Rjúpnastofninn stór og sterkur í ár
Fréttir 9. nóvember 2026

Rjúpnastofninn stór og sterkur í ár

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Rjúpnastofninn er stór í ár og einkum sterkur á Norðaustur- og Austurlandi. Náttúrufræðistofnun segir enga eina skýringu fyrir uppsveiflu stofnsins heldur að margir þættir spili inn í.

Rjúpnastofninn er breytilegur milli ára og sveiflast náttúrulega. Nú virðist stofninn vera í uppsveiflu þar sem rjúpurnar, hvítar með loðnar tær, sjást skjótast inn í veturinn.

Í svari Náttúrufræðistofnunar, sem sér um rjúpnatalningu ár hvert, segir að samkvæmt rjúpnatalningum vorsins 2026 hafi þéttleiki rjúpna verið um 7% meiri en árið áður. „Staðan er þó mismunandi eftir landshlutum. Miðað við stofnvísitölur síðustu tveggja áratuga er stofninn nálægt meðaltali á Vestur- og Suðurlandi, en yfir meðaltali á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum, Norðausturlandi og Austurlandi. Sérstaklega hefur stofninn verið öflugur á Norðaustur- og Austurlandi.“

Ekki er hægt að rekja stöðu rjúpnastofnsins til einnar skýringar. Náttúrufræðistofnun bendir á að stofnstærð ráðist af samspili ýmissa þátta, meðal annars veðurfars, aðgengis að fæðu, afráns og annarra vistfræðilegra ferla. Þá er talið líklegt að fækkun fálka hafi átt þátt í fjölgun rjúpna á sumum svæðum, en þéttleiki rjúpna hefur víða aukist þar sem fálkastofninn hefur verið í lágmarki undanfarin ár. „Á sama tíma geta veðurfarsskilyrði og afkoma unga haft mikil áhrif á þróun stofnsins milli ára. Því er ekki hægt að nefna eina orsök, heldur er um samverkandi áhrif margra þátta að ræða.“

Umræðan um fjölgun rjúpunnar hefur stundum snúið að því að fækkun veiðimanna valdi stækkun stofnsins. Náttúrufræðistofnun telur að það sé ekki úrslitaþáttur. „Fækkun veiðimanna hefur verið þróun sem staðið hefur yfir um langt skeið, á sama tíma og rjúpnastofninn hefur sveiflast bæði upp og niður. Því er ólíklegt að breytingar á stofnstærð rjúpunnar megi rekja eingöngu til fækkunar veiðimanna. Líkt og áður þarf að horfa til samspils margra þátta, þar á meðal afráns, veðurfars, nýliðunar og veiða.“

Skylt efni: rjúpnaveiðar | rjúpa

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...