Reglubyrði veikir viðnámsþrótt
Mynd / smh
Skoðun 2. nóvember 2026

Reglubyrði veikir viðnámsþrótt

Höfundur: Margrét Gísladóttir
Margrét Gísladóttir.

Það er vart hægt að finna stjórnmálamann á Íslandi sem er ósammála því að einfalda þurfi regluverk og draga úr stjórnsýslubyrði atvinnulífsins. Þrátt fyrir það kemur Ísland verst út meðal Norðurlandanna á mælikvarða OECD um stjórnsýslu- og regluverksbyrði sem birtur er í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar. Ísland fær þar 2,7 stig en Danmörk 1,0. Um er að ræða vísitölu en ekki beina mælingu á kostnaði fyrirtækja, en samanburðurinn gefur bersýnilega til kynna umtalsvert svigrúm til að gera betur og skýrt tilefni til aðgerða.

Fyrir landbúnað og matvælaframleiðslu, líkt og aðrar atvinnugreinar, birtist þessi reglubyrði í töluverðum fjármunum, tíma og fyrirhöfn sem fer í skýrslugerðir og samskipti við opinberar stofnanir, sem annars gæti verið varið í fjárfestingar, nýsköpun og uppbyggingu. Aukin og íþyngjandi reglubyrði getur því haft neikvæð áhrif á getu til að fjárfesta, þróa framleiðsluna og bregðast við áföllum. Með öðrum orðum: viðnámsþrótt fyrirtækjanna og fæðukerfisins í heild.

Aukin reglubyrði kostar

Síðustu ár hafa sýnt hversu hratt ytri aðstæður geta breyst. Heimsfaraldur, stríð, truflanir á siglingaleiðum og sveiflur í aðfangaverði hafa minnt okkur á að framleiðendur starfa við óvissu sem þeir ráða litlu um. Þá skiptir enn meira máli fyrir viðnámsþrótt fæðukerfisins hvernig við mótum þá þætti sem við stjórnum sjálf.

Fyrirtæki sem þarf að verja sífellt meiri tíma og fjármunum í stjórnsýslu hefur minna svigrúm til annars. Hver ný krafa kann að virðast smávægileg. Hver umsókn og hvert eftirlitsgjald kann að eiga sína skýringu. En bóndinn eða fyrirtækið þarf að standa undir þessu öllu saman. Heildin getur orðið þung þó svo hver einstakur liður virðist viðráðanlegur í augum þeirra sem skrifa reglurnar.

Það er afar mikilvægt – og ætti auðvitað að vera ófrávíkjanleg vinnuregla – að þeir sem semja og innleiða nýjar kröfur horfi á og meti samanlögð áhrif þeirra. Hvað kostar að uppfylla þær? Hversu lengi þarf að bíða eftir afgreiðslu? Er verið að kalla eftir sömu upplýsingum oftar en einu sinni? Og er ávinningurinn í eðlilegu hlutfalli við kostnaðinn?

Einföldum kerfið

Skýrsla Norrænu ráðherranefndarinnar bendir einmitt á að reglubyrði birtist einnig í flóknum og hægum leyfisferlum, óvissu um framkvæmd og viðbótarkröfum við innleiðingu evrópskra reglna. Því skiptir máli hvernig stjórnvöld nýta svigrúmið sem þau hafa. Við eigum að setja okkur skýr markmið um að fyrirtæki skili sömu upplýsingum aðeins einu sinni. Eftirlit þarf að vera samræmt og byggjast á áhættu. Afgreiðslufrestir þurfa að vera fyrirsjáanlegir og nýjum kröfum að fylgja raunhæft kostnaðarmat. Jafnframt þarf að fara yfir eldri skyldur og fella niður þær sem skila litlum eða engum árangri.

Einföldun verður að mælast í daglegum rekstri: færri vinnustundum við umsýslu, minni kostnaði og raunverulega einfaldari framkvæmd. Tilkynningar um áform og umræða um einföldun duga skammt ef reynsla framleiðenda breytist ekki.

Styrkar stoðir

Viðnámsþróttur fæðukerfisins byggist á starfandi búum, vinnslufyrirtækjum, þekkingu og fjárfestingu. Við þurfum að tryggja eftir fremsta megni að framleiðslugeta sé til staðar áður en ytri áföll og atburðir auka álagið á kerfið. Hana verður ekki hægt að kalla fram með skömmum fyrirvara þegar innflutningur tefst eða aðföng hækka.

Við viljum traust fæðuöryggi, ábyrga framleiðslu og vönduð matvæli. Til þess þurfum við öflug fyrirtæki sem hafa bolmagn til að bæta reksturinn og mæta breyttum aðstæðum. Það er sameiginlegt hagsmunamál að starfsumhverfi atvinnulífsins styðji við þá getu. Hófleg gjöld, einfalt regluverk og svigrúm til fjárfestinga og þróunar.

Íslenskur landbúnaður hefur fólk, þekkingu og tækifæri til að skapa meiri verðmæti. Ef við viljum geta treyst á innlenda framleiðslu þegar á reynir þá þurfum við að gera henni kleift að dafna áður en að því kemur.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...