Ræktunarbú ársins, verðlaunahrútar  og verðlaunabú í ræktun gegn riðu
Fréttir 6. maí 2026

Ræktunarbú ársins, verðlaunahrútar og verðlaunabú í ræktun gegn riðu

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Fagfundur sauðfjárræktarinnar var haldinn nýverið á Hótel Laugarbakka í Miðfirði, þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir góðan árangur í þremur ræktunarflokkum.

Um árlegan viðburð er að ræða sem fagráð í sauðfjárrækt stendur fyrir þar sem meðal annars er fjallað um ýmsar fræðilegar hliðar sauðfjárræktar á Íslandi.

Frá Fagfundi sauðfjárræktarinnar sem haldinn var á Hótel Laugarbakka. Myndir / aðsendar

Ný áhersluverkefni fagráðs

Sigurborg Hanna Sigurðardóttir, formaður fagráðs í sauðfjárrækt, segir líklegt að yfir 100 manns hafi mætt á fundinn. Í setningarræðu hennar kom fram að tími væri kominn til að setja inn ný áhersluverkefni á óskalistann í faglega starfinu, sem gætu hjálpað til við ná ræktunarmarkmiðunum.

Meðal þess sem fagráð vilji leggja áherslu á sé að hvetja til rannsóknar- og þróunarverkefna sem stuðli að fjölgun lamba til nytja, að náið sé fylgst með þróun skyldleikaræktar í stofninum, kannaðir séu möguleikar á hagnýtingu erfðamengjaúrvals, vel sé fylgst með erfðagöllum og vöktun bragðgæða lambakjöts.

Faldur og Askur verðlaunahrútar

Baldursheimur 2 var útnefnt ræktunarbú ársins 2025. Verðlauna- hrútar sæðingastöðvanna voru Faldur 23-937 frá Ytri-Skógum, sem besti lambafaðir sæðinga- stöðvanna, og Askur 19-884 frá Kirkjubæjarklaustri II sem mesti kynbótahrútur stöðvanna.

Þá voru þrjú bú verðlaunuð fyrir góðan árangur í ræktun gegn riðu; Krithóll í Skagafirði, YtriHóll 1 í Skagabyggð og Heydalsá í Steingrímsfirði.

Eyþór Einarsson, ráðunautur RML, Sigurborg Hanna Sigurðardóttir, formaður fagráðs í sauðfjárrækt og Sigurður Anton Pétursson, ræktandi Faldurs frá Ytri-Skógum, sem útnefndur var sem besti lambafaðir sæðingastöðvanna 2025.

Þroskamikil og fönguleg lömb

Í Baldursheimi 2 búa þau Eyþór Pétursson og Agnes Einarsdóttir, en heildareinkunn kynbótamats búsins var 108,2 stig og meðaleinkunn fyrir gerð var 116 stig, sem var sú hæsta á úrvalslistanum sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) gefur út. Sérstaklega er fjallað um ræktunarbú ársins á síðu 4.

Í umsögnum ráðunauta um verðlaunahrútana, sem Eyþór Einarsson ráðunautur hjá RML kynnti, kom fram að Faldur gæfi þroskamikil og fönguleg lömb á velli. Höfuð væru yfirleitt gallalítil, en nokkur lömb hafi fundist með yfirbit. Fætur góðir og ullin yfirleitt skammlaus að gæðum. Lömbin væru jafnvaxin og ákaflega vel holdfyllt með frábærlega þykkan og vel lagaðan bakvöðva.

Faldur er fjórði hrúturinn frá Ytri-Skógum sem hlýtur þessa viðurkenningu sem veitt er af sæðingastöðvunum.

Um Ask kom fram að sem kynbótahrútur væri hann býsna jafnsterkur í öllum mikilvægustu eiginleikum, en höfuðkostirnir virtust þó liggja í gerð sláturlamba og frjósömum dætrum. Kynbótamat Asks fyrir gerð stendur í 118 og 97 fyrir fitu. Fyrir fallþunga af beinum áhrifum stendur matið í 109.

Á afurðaárinu 2025 hafi dætur Asks verið um 300 talsins. Útlit sé fyrir að þær séu afar frjósamar og stendur kynbótamat hans fyrir þann þátt í 115 stigum. Fyrir mjólkurlagni stendur kynbótamat í 108 stigum og fyrir fallþunga mæðraáhrifa í 112 stigum.

Ytri-Hóll hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í ræktun gegn riðu í flokki annarra búa í áhættuflokki. Ábúendur eru þau Björn Þormóður Björnsson og Dagný Rósa Úlfarsdóttir og hér er Björn á milli þeirra Eyþórs Einarssonar og Sigurborgar Hönnu Sigurðardóttur.

Kynbótamat fyrir riðumótstöðu

Þau bú sem voru verðlaunuð fyrir góðan árangur í ræktun gegn riðu, stóðu efst í kynbótamati fyrir riðumótstöðu – hvert í sínum áhættuflokki.

Samkvæmt landsáætlun um útrýmingu riðuveiki eru bú flokkuð með tilliti til áhættu gagnvart riðu og eru markmið um hraða innleiðingar mismunandi milli flokka. Verðlaunin eru því veitt innan þessa flokka. Kröfur eru gerðar um að á búinu séu 100 eða fleiri skýrslufærðar ær og að búið standist viðmið landsáætlunar, en nú getur hver og einn skoðað stöðu þessarar ræktunar fyrri sitt bú inni í Fjárvís, undir Riðumælaborð. 

Kynbótamatseinkunn Krithóls, þar sem ábúendur eru Hrund Malín Þorgeirsdóttir og Björn Ólafsson, reyndist vera 118 stig – en það er metið „áhættubú“. Á Ytra-Hóli 1 eru ábúendur Björn Þormóður Björnsson og Dagný Úlfarsdóttir. Búið er flokkað undir „önnur bú í áhættuhólfi“ og var kynbótamatseinkunn 112 stig. Heydalsá er flokkað sem „bú án hafta“, með kynbótamatseinkunn 114 stig. Þar eru ábúendur Nicole Krysiak og Guðjón H. þessarar ræktunar fyrri sitt bú inni í Fjárvís, undir Riðumælaborð. 

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...