Ráðuneyti stefna  að sameiningu
Fréttir 25. júní 2026

Ráðuneyti stefna að sameiningu

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafa ákveðið að vinna að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Í skýrslum Ríkisendurskoðunar hefur verið bent á skörun verkefna stofnananna og stýrihópur um gerð frumathugunar um sameiningu skilaði jákvæðum niðurstöðum.

Eydís Líndal Finnbogadóttir.

Sameiningin mun byggja á styrkleikum beggja stofnana samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins. Rannsóknir, vísindasöfn og gagnagrunnar geti þannig stutt enn betur við sýningar-, fræðslu- og miðlunarhlutverk Náttúruminjasafns Íslands sem höfuðsafn á sviði náttúrufræða. Niðurstöður frumathugunarinnar sýna að veruleg tækifæri felast í sameiningunni. Heildstæð þekkingarstofnun um náttúru Íslands sem sameinaði rannsóknir, vöktun, varðveislu og miðlun gæti orðið öflug og myndi slík stofnun styrkja innviði þekkingarsköpunar um íslenska náttúru. Það fælist bæði í því að efla fræðslu og upplýsingamiðlun til almennings og skóla og að styðja við stefnumótun í náttúruvernd, líffræðilegri fjölbreytni og loftslagsmálum. Í skýrslunni kom auk þess fram að sameiningin gæti skilað fjárhagslegum ávinningi með betri nýtingu húsnæðis, innviða og stoðþjónustu.

Ragnhildur Guðmundsdóttir.

Öflugt þekkingarsamfélag

Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Náttúrufræðistofnunar, var einnig þátttakandi í nefndinni sem vann að frumathugun á þessari sameiningu. Aðspurð segir Eydís að henni lítist vel á þessi áform og að það séu mikil tækifæri sem felist í stærri og öflugri stofnunum á Íslandi. „Styrkleikinn í þessari sameiningu mun felast í öflugri miðlun náttúru- og umhverfisupplýsinga, þar sem kraftar miðlunar, safnastarfs, rannsókna, vöktunar og öflugra landupplýsinga sameinast í öflugu þekkingar- samfélagi,“ segir Eydís.

Aðspurð segir hún að engar áhyggjur liggi fyrir eins og er en að áherslan verði að vera á skýra framtíðarsýn. „Okkar áherslur eru að báðar stofnanirnar sem sameinast í eina hafa sterk lagaleg hlutverk og við sameiningu þurfa þessi hlutverk að fá vægi í sam- einaðri stofnun,“ segir Eydís. „Mikilvægast í sameiningum er þó að hafa í huga að þetta er vinna sem snýst um fólk og mikilvæg verkefni stofnananna, þessu þarf að hlúa að.“

Tækifæri til frekari sóknar

Ragnhildur Guðmundsdóttir forstöðumaður Náttúru- minjasafns Íslands, er sömuleiðis jákvæð fyrir þessum áformum. „Við á Náttúruminjasafninu erum spennt fyrir framtíðinni og þessi sameining getur fært okkur tækifæri til enn frekari sóknar í eflingu á náttúruvísindamiðlun. Okkar sérhæfing er fyrst og fremst í miðlun og þekkingu á safnastarfsemi en einnig líffræðilegri fjölbreytni. Náttúruminjasafnið er höfuðsafn á sviði náttúrufræða og hefur leiðbeinandi hlutverk gagnvart viðurkenndum söfnum í málefnum náttúrunnar,“ segir Ragnhildur.

Aðspurð segir hún að stærstu fréttirnar fyrir Náttúruminjasafnið séu afdráttarlaus yfirlýsing ráðherra um að opna nýtt húsnæði Náttúruminjasafnsins og fullgera grunnsýningu sem búið er að hanna inn í húsið. „Sú sýning fjallar um hafið í kringum Ísland, líffræðilega fjölbreytni og helstu ógnir á borð við loftslagsbreytingar.

Það að fá varanlegt heimili fyrir safnið mun gjörbylta því hvernig við getum hagað starfseminni. Það mun til dæmis auðvelda okkur móttöku skólahópa en gert er ráð fyrir sérstökum rýmum þar sem hægt verður að taka á móti stærri og minni hópum, einnig verður fyrirlestrasalur auk sýningarsala,“ segir Ragnhildur. Náttúruminjasafn Íslands flytur í Náttúruhús á Seltjarnarnesi og verður húsið og sýningin opnuð árið 2027.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.