Pitsuostur og almannahagsmunir
Leiðari 24. september 2026

Pitsuostur og almannahagsmunir

Höfundur: Þröstur Helgason

Margt er skrýtið í kýrhausnum. Nú eru stjórnvöld enn og aftur búin að setja pitsuostamálið svokallaða á dagskrá með einni afar óljósri málsgrein í áformaskjali á vegum fjármála- og efnahagsráðuneytis Daða Más Kristóferssonar í samráðsgátt. Málsgreinin hljóðar svona: „Breytingar á tollflokkun á rifnum mozzarella osti með viðbættum jurtaolíum sem notaður er við pizzagerð.“ Engar frekari skýringar eru gefnar, ekkert samhengi eða útfærsla.

Ekki kemur þó á óvart að bæði Bændasamtök Íslands og Samtök fyrirtækja í landbúnaði (SAFL) bregðast við með ítarlegum umsögnum þar sem gengið er út frá því að með þessari málsgrein í áformaskjali Daða Más sé boðað að breyta eigi lögum þannig að „rifinn mozzarella ostur með viðbættum jurtaolíum“ verði ekki skilgreindur sem ostur við innflutning heldur sem jurtaostur. Innihald þessa innflutta osts er þó eigi að síður 82–83% mozzarella-ostur, 11–12% pálmaolía og 4–5% kartöflusterkja. Sem sé að ríflega 4/5-hluta er þetta ostur (og að restinni til aukaefni sem koma ostagerð yfirleitt ekkert við).

Þetta virðist ríkisstjórnin áforma nú þrátt fyrir að á undan séu gengin ítrekuð málaferli, höfðuð af heildsölunum sem flytja þennan ost inn, sem öll hafa endað með bindandi stjórnsýsluákvörðunum, úrskurðum yfirskattanefndar og í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þann 8. júlí 2021, dómi Landsréttar þann 11. febrúar 2022, synjun Hæstaréttar á áfrýjunarleyfi þann 21. mars 2022, úrskurði Endurupptökudóms þann 20. desember 2023, dómi Héraðsdóms Reykjavíkur þann 17. febrúar 2025, dómi Landsréttar þann 11. mars 2026 og loks í dómi Hæstaréttar þann 27. apríl 2026 um að þarna sé um að ræða ost sem beri að tollflokka sem slíkan.

En fjármálaráðherra vill sem sagt halda áfram að berja hausnum við steininn. Og satt að segja verður ekki annað séð en að það eigi að gera að yfirlögðu ráði, af þeirri pólitísku sannfæringu að það sé almenningshagsmunum, sem þessari ríkisstjórn er jú tíðrætt um, fyrir bestu að hingað til lands megi flytja þennan svokallaða jurtaost tollfrjálst, alveg burt séð frá því hvort þar hvíli á bak við einhver lagaleg skylda.

En eru það í raun og veru hagsmunir almennings að heildsalar fái að flytja inn þennan ost tollfrjálst? Eða eru það kannski fyrst og fremst sérhagsmunir heildsalanna?

Í dag fer rúmlega 12% af allri mjólk sem framleidd er í landinu í að búa til rifinn ost sem neytt er í landinu, eða um 18,5 milljónir lítra af mjólk. Samsvarar það mjólkurframleiðslu 49 meðalkúabúa á ári. Verði tollar á umræddan innflutning felldir brott þá mun það hafa veruleg áhrif á íslenska kúabændur.

Svo mikið er aftur á móti víst að heildsalarnir munu græða umfram alla aðra verði innflutningur á þessum osti gerður tollfrjáls. Neytendur munu í auknum mæli fá verri ost á pitsurnar sínar. Að auki sitja þeir uppi með veikari mjólkurframleiðslu í landinu, færri kúabændur, veikari tollvernd fyrir íslenska landbúnaðarframleiðslu og þar með veikari landbúnað sem setur búsetu í landinu í hættu og sömuleiðis fæðuöryggi þjóðarinnar og þar með þjóðaröryggið.

Þegar betur er að gáð snýst þetta mál ekki síst um það hvort almannahagsmunir felist í því að landsmenn geti keypt af heildsölum innfluttan ódýrari mozzarella-ost, sem er blandaður með aukaefnum á borð við pálmaolíu og kartöflusterkju, eða í öflugum íslenskum landbúnaði sem heldur uppi fyrsta flokks matvælaframleiðslu og fæðuöryggi fyrir landsmenn.

Þröstur Helgason

Skylt efni: tollamál | Ostur | pitsaostur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...