Ósýnilegt friðartákn
Skoðun 2. nóvember 2026

Ósýnilegt friðartákn

Höfundur: Eva Gunnarsdóttir

– Að hugsa sér frið

Eva Gunnarsdóttir.

Friðarsúlan í Viðey, útilistaverk Yoko Uno til heiðurs minningu eiginmanns hennar, Johns Lennon, hefur lýst upp skammdegið fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins í tæp tuttugu ár og yfir árin jafnan glatt þá sem á ferðinni eru eftir sólarlag á vissum tímum yfir árið. Höfund þessarar greinar ekki síst.

Hugmyndin að verkinu kviknaði hjá Ono árið 1967. Friðarsúlan er í grunninn eins konar óskabrunnur úr hvítu grjóti en upp úr honum rís öflugur ljósgeisli sem beint er upp í norðurhimininn. Orðin „hugsa sér frið“ (Imagine Peace) eru grafin á stalli súlunnar á 24 tungumálum. Undir og í kringum mannvirkið eru geymdar hundruð þúsunda friðaróskir sem fólk hvaðanæva að úr heiminum hefur sent listakonunni í gegnum tíðina.

Súlan er tendruð árlega við hátíðlega athöfn á afmæli Lennons og logar til dánardags hans, frá sólarlagi til miðnættis, Hún lýsir einnig 18. febrúar, á afmælisdegi Yoko Ono. Að auki logar ljósið frá vetrarsólstöðum til nýársdags og eina viku að vori. Ljósið frá Viðey er sýnilegt víða um höfuðborgarsvæðið og þjónar sem stöðug áminning um boðskap hjónanna um heimsfrið.

Síðsumars árið 2024 var farið yfir tæknibúnað Friðarsúlunnar og hann endurnýjaður í samstarfi við listakonuna. Nýi ljósabúnaðurinn var hannaður til þess að vera stöðugri, draga úr rekstrarkostnaði og minnka orkunotkun.

Mín upplifun er þó sú að breytingarnar hafi fremur haft öfug áhrif og í raun gert hana nær ósýnilega. Þegar horft er til himins á kvöldin og þegar ég er á ferðinni er mér nær ómögulegt að finna hana á næturhimninum.

Á tímum þar sem óvissa ríkir og ófriður liggur í loftinu eins og nú er, ætti Friðarsúlan að vera öflugt tákn sem veitir styrk. Ljósgeislinn, sem teygir sig hátt upp í myrkan norðurhimininn, ætti að minna okkur á að jafnvel á dimmustu stundum má alltaf finna ljós og leið fram á við.

Jafnvel hér uppi á Íslandinu góða gengur fólk með ónot í maganum yfir því sem gæti gerst án mikils fyrirvara og því er brýnt að þetta tákn friðar fái aftur að lýsa skært og minna okkur á samstöðu.

Friðarsúlan ætti að lýsa veginn.

All you need is love – ást og umburðarlyndi.

Höfundur er íbúi á Kjalarnesi.

Skylt efni: Skoðun | menning

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...