Öflugt starf Lands og skógar á sviði vöktunar og rannsókna
Á faglegum nótum 11. ágúst 2026

Öflugt starf Lands og skógar á sviði vöktunar og rannsókna

Höfundur: Bryndís Marteinsdóttir
Bryndís Marteinsdóttir.

Eitt af verkefnum Lands og skógar er að halda úti öflugu rannsóknar- og vöktunarstarfi. Starfið fer fram á sviði rannsókna, vöktunar og árangurs í nánu samstarfi við önnur svið stofnunarinnar. Á sviðinu starfa um 40 sérfræðingar við fjölbreytt verkefni og á sumrin bætast yfir 15 ungir rannsakendur og háskólanemar í náttúruvísindum í hópinn til að sinna vettvangsvinnu víða um land.

Land og skógur vaktar ástand gróðurs og jarðvegs í fjölbreyttum vistkerfum, bæði þar sem land er nýtt og þar sem náttúran fær að þróast án verulegra áhrifa mannsins. Sum verkefnin eiga sér áratugalanga sögu, á meðan önnur, eins og vöktun votlendis, eru ný af nálinni. Sífellt fleiri verkefni eru jafnframt unnin í samstarfi við landeigendur og landnýtendur sem taka þátt í gagnaöflun á eigin landi. Höfundur er hagfræðingur.

Í dag fylgist Land og skógur með vel yfir 3.000 mælipunktum víðs vegar um landið. Gögnin sem safnast á mælipunktunum veita mikilvægar upplýsingar um ástand og þróun gróðurs og jarðvegs. Upplýsingarnar nýtast meðal annars við loftslagsbókhald Íslands, mat á ástandi beitilanda og skóglendis, ráðgjöf til landeigenda og mat á árangri landgræðslu- og skógræktaraðgerða.

Með því að sameina upplýsingar úr mælipunktum, gervitunglamyndir og nýjar greiningaraðferðir, þar á meðal gervigreind, er hægt að varpa niðurstöðum yfir stærri svæði. Þannig fæst heildstæð mynd af ástandi gróðurs og jarðvegs um land allt og hvernig það breytist milli ára eða vegna ólíkra landnýtingar- og endurheimtaraðgerða.

Land og skógur heldur einnig úti vöktun á skaðvöldum í skógum landsins. Markmiðið er að fylgjast með útbreiðslu skaðvalda og skemmdum af þeirra völdum, þannig að hægt sé að bregðast tímanlega við og draga úr tjóni.

Rannsóknir eru stór þáttur í starfsemi Lands og skógar og spanna fjölbreytt viðfangsefni. Meðal annars er unnið að rannsóknum á nýtingu lífræns áburðar, svo sem seyru, fiskimykju, kjötmjöli og búfjáráburði, þróun nýrra aðferða við endurheimt votlendis og prófunum á nýju efniviði til landgræðslu og skógræktar. Jafnframt eru stundaðar rannsóknir sem styðja við aðlögun skógræktar að loftslagsbreytingum, meðal annars með því að meta hvaða tegundir og kvæmi henta best við hlýnandi loftslag og aukna ásókn skaðvalda. Markmiðið er að ný þekking skili sér í betri aðferðum, markvissari framkvæmdum og auknum árangri í endurheimt vistkerfa, landgræðslu og skógrækt.

Á sviðinu eru einnig unnar fjölmargar rannsóknir á áhrifum aðgerða Lands og skógar á vistkerfi. Þar má nefna rannsóknir á áhrifum skógræktar og endurheimtar vistkerfa á líffræðilega fjölbreytni og kolefnisbúskap og áhrif beitar á vistkerfi. Þar að auki er unnið að samræmdu árangursmati fyrir verkefni stofnunarinnar, allt frá gæðamati á efniviði sem notaður er í framkvæmdum til mats á langtímaárangri landgræðslu- og skógræktaraðgerða.

Þekkingin sem verður til með rannsóknum og vöktun nýtist landeigendum, bændum, stjórnvöldum og öðrum sem koma að landnýtingu til að meta ástand og þróun lands, skilja áhrif landnýtingar og endurheimtaraðgerða og styðja við upplýsta ákvarðanatöku. Þannig leggur rannsóknar- og vöktunarstarf Lands og skógar grunn að því að aðgerðir og ráðgjöf stofnunarinnar byggi á traustri þekkingu og skili sem bestum árangri.

Höfundur er sviðsstjóri á sviði rannsókna, vöktunar og árangurs hjá Landi og skógi.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...