Gallerí Lokað er á Seyðisfirði.
Gallerí Lokað er á Seyðisfirði.
Menning 16. nóvember 2026

Nýtt gallerí á Seyðisfirði

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Gallerí Lokað er listamannarekið rými sem var opnað nýverið í gömlu netagerðinni á Seyðisfirði. Anthony Nix galleristi og Mark Rohtmaa-Jackson, sýningarstjóri og listamaður, reka rýmið.

 Mark Rohtmaa-Jackson, sýningarstjóri og listamaður

Fyrsta sýningin ber titilinn The behaviour of geese, eða hegðun gæsa, og er sýning á verkum listakonunnar Heiðdísar Hólm. Næsta sýning verður á verkum japönsku listakonunnar NaoKo TakaHashi.

Galleríið er lítið með stórum glugga og var vinnustofa listamanns áður en það varð sýningarrými. Í gömlu netagerðinni eru bæði vinnustofur og verkstæði. Mark Rohtmaa-Jackson sagði í viðtali við blaðið að hugmyndin sé að búa þarna til rými sem gæti allt eins verið í Shoreditch í London þótt það sé á Austfjörðum á hættusvæði C vegna ofanflóða. „Rýmið er lítið svo þar er tækifæri til að sýna listamenn sem eiga kannski ekki mikið af verkum eða listamenn sem koma erlendis frá með verk, en að fólk geti samt gert eitthvað verðmætt í litlu rými.“ Mark segir það kallast fallega á við staðinn sjálfan þar sem mikil list og sköpun er til staðar á Seyðisfirði þótt samfélagið sé lítið.

Fyrst sýningin í Gallerí Lokað er á verkum listakonunnar Heiðdísar Hólm.

„Það er ákveðin viðkvæmni í því líka, eða brothætta, að koma með listaverk hingað á þetta ofanflóðasvæði og í þetta rými sem er aldrei formlega opið eða lokað, heldur bara er og fólk getur komið við hvenær sem því hentar, það þarf bara að kveikja ljósin og ganga inn.“

Verk af sýningunni.

Skylt efni: listasyning

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...