Nýr vefblaðamaður
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Fréttir 17. mars 2026

Nýr vefblaðamaður

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Katrín Lilja Jónsdóttir hefur tekið til starfa sem vefblaðamaður hjá Bændablaðinu. Hennar verkefni snúa helst að fréttaskrifum og umsjón með vefnum bbl.is.

Síðustu ár hefur Katrín starfað sem ritstjóri hjá Storytel og mun hún sinna verkefnum áfram á þeim vettvangi.Hún segist áhugasöm um áframhaldandi framleiðslu á hlaðvarpsþáttum og vonast til að geta komist í slík verkefni fyrir Bændablaðið. Þá vill hún koma vefsíðu Bændablaðsins, bbl.is, mjög á skrið og ná til breiðari lesendahóps en prentútgáfa blaðsins nær til.

Hún er með BA próf í sagnfræði og MA í blaða- og fréttamennsku frá Háskóla Íslands. Hún hefur gert útvarpsþætti fyrir RÚV, eins og Hver var Sonja de Zorilla? og var lokaverkefni hennar fjögurra þátta sería sem heitir Íslendingar eru heiðnari en þeir halda.

Hún segir verkefnin sem fyrir hana hafa verið lögð bæði fjölbreytt og skemmtileg. Uppeldisstöðvar Katrínar eru á Kalastöðum í Hvalfirðinum þar sem rekið var blandað bú með kúm og kindum, en hún er búsett á Akranesi.

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...