Norskir búvörusamningar
Fréttir 18. maí 2026

Norskir búvörusamningar

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Viðræður eru í gangi um árlega búvörusamninga á milli norskra bænda og ríkisins.

Norskir bændur settu fram kröfu um greiðslur upp á 4,2 milljarða norskra króna, þar af 2,6 milljarða vegna verðhækkana á tilbúnum áburði og dísilolíu í kjölfar innrásar Bandaríkjamanna og Ísraels á Íran. Verð á áburði hefur þegar hækkað um 15% í Noregi og verð á gjaldfrjálsri dísilolíu um 35%.

Ríkið bauð bændum 3,2 milljarða. Í tilboðinu er meðal annars áhersla á aukna sjálfbærni, fræbirgðir og að norska þingið ákvað að tekjur bænda verði jafnar tekjum annarra launþega árið 2027. Samningsfrestur er til 16. maí. Samningar síðasta árs hljóðuðu upp á 1,1 milljarð.

Í svari atvinnuvegaráðuneytisins við fyrirspurn um hvort tekið sé mið af hækkun á verði á innfluttum nauðsynjavörum til landbúnaðarframleiðslu, í samningum um framlenginu búvörusamninga segir að „við ársframlengingu búvörusamninga er ekki gert ráð fyrir efnislegum breytingum nema að litlu leyti“.

„Tölur fjárlaganefndarinnar sýna greinilega að sú framleiðsla sem leggur mest af mörkum til sjálfbærni og nýtingar norskra auðlinda býr við ömurlega fjárhagsstöðu,“ segir Tor Jacob Solberg, leiðtogi norsku bænda- og smábændasamtakanna, í samtali við NRK.

Matvælaframleiðsla heimsins minnkar umtalsvert verði langvarandi vöntun á tilbúnum áburði. Sameinuðu þjóðirnar vara nú við vaxandi hungursneyð opni Hormússundið ekki.

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...