Norrænir sérfræðingar tala um reynslu sína af ESB
Fréttir 13. ágúst 2026

Norrænir sérfræðingar tala um reynslu sína af ESB

Höfundur: Þröstur Helgason

Bændasamtök Íslands boða til málþings á morgun, föstudaginn 14. ágúst, þar sem rætt verður um landbúnað í evrópsku samhengi og sérstaklega hugað að reynslu Norðurlandanna. Aukabúnaðarþing verður sett að málþinginu loknu.

Á málþinginu munu þrír sérfræðingar frá Finnlandi, Noregi og Svíþjóð fjalla um reynslu landa sinna af samskiptum og samstarfi við Evrópusambandið og áhrif þess á starfsskilyrði landbúnaðarins í hverju landi. Jafnframt verður fjallað um lærdóm sem Ísland getur dregið af reynslu nágrannaþjóðanna.

Fyrirlesarar eru Esa Härmälä frá Finnlandi, Bjørn Gimming frá Noregi og Ingrid Rydberg frá Svíþjóð.

Esa Härmälä er einn reynslumesti sérfræðingur Norðurlanda á sviði landbúnaðar- og Evrópumála. Hann gegndi lykilhlutverki í aðildarviðræðum Finnlands við Evrópusambandið og var einn helsti hugmyndasmiður hins norðlæga stuðnings til finnsks landbúnaðar. Þá leiddi hann stærstu bændasamtök landsins og hefur áratugareynslu af stefnumótun í evrópskum landbúnaði.

Í erindi sínu mun hann fjalla um reynslu Finna af aðildarviðræðunum við Evrópusambandið, aðildinni sjálfri og hvaða lærdóm Ísland getur dregið af henni.

Bjørn Gimming er formaður norsku bændasamtakanna, Norges Bondelag, og einn áhrifamesti talsmaður landbúnaðar í Noregi. Hann býr yfir mikilli reynslu af hagsmunagæslu og stefnumótun í landbúnaðarmálum. Hann er jafnframt bóndi sem stundar kornrækt, nautgriparækt og skógrækt. Undir hans forystu hafa samtökin verið í lykilhlutverki í umræðu um fæðuöryggi, landbúnaðarstefnu og framtíð matvælaframleiðslu.

Bjørn mun deila reynslu Norðmanna af EES-samstarfinu, stöðu landbúnaðar í Noregi og þeim sjónarmiðum sem hafa orðið til þess að norskir bændur hafa viljað standa utan Evrópusambandsins.

Ingrid Rydberg starfar hjá sænsku bændasamtökunum, Lantbrukarnas Riksförbund (LRF), og hefur stýrt skrifstofu samtakanna í Brussel í hartnær tvo áratugi. Hún býr yfir víðtækri reynslu af hagsmunagæslu og stefnumótun gagnvart Evrópusambandinu á sviðum landbúnaðar, sameiginlegu landbúnaðarstefnunnar (CAP), umhverfis- og orkumála og alþjóðaviðskipta.

Hún mun fjalla um reynslu sænsks landbúnaðar innan Evrópusambandsins, hvernig stefna sambandsins hefur mótað starfsskilyrði bænda og hvaða lærdóm Ísland getur dregið af reynslu Svía. Málþingið stendur frá kl. 10:0012:00 á Reykjavik Hilton Nordica. Fyrirlestrar fara fram á ensku. Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis.

Aukabúnaðarþing

Að málþinginu loknu fer fram aukabúnaðarþing Bændasamtakanna þar sem fundarfólk mun álykta um efni nýrrar skýrslu milliþinganefndar samtakanna um íslenskan landbúnað og ESB.

Skylt efni: Búnaðarþing

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...