Annars flokks gulræturnar eru smærri, en sætar og safaríkar. Ólína kynnti þær á síðasta lífræna deginum.
Annars flokks gulræturnar eru smærri, en sætar og safaríkar. Ólína kynnti þær á síðasta lífræna deginum.
Mynd / eks
Fréttir 9. nóvember 2026

Nokkur hundruð kíló ruku út

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Matland brást skjótt við áhuga lesenda á að kaupa annars flokks lífrænar gulrætur frá Akri Organic, sem eru ræktaðar í Þistilfirði og sagt var frá í þarsíðasta blaði að þau ættu erfitt með að koma í verð.

Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Akurs Organic, segir ánægjulegt að Matland hafi hafið almenna sölu á þeim, sjálf hafi þau fundið fyrir góðum viðbrögðum. Hún segir dreifingu á fyrsta flokks gulrótum einnig vandkvæðum bundna. Þær rati oft ekki í búðir í þeirra nærumhverfi á Norður- og Austurlandi því stóru birgjarnir og verslanakeðjurnar setji kröfur á að fá allar vörur á lagera sína fyrir sunnan til dreifingar. Vörurnar rati ekki aftur í landshlutann. Flutningskostnaður hafi þar að auki hækkað mikið, meðal annars vegna aukinna álaga ríkisins sem þyngi reksturinn. Ríkisstjórnin þurfi að ákveða hvort byggð eigi að vera áfram um allt land.

Nokkur hundruð kíló á fáum dögum

„Matland setti gulræturnar í sölu um leið og umræðan um að bændur kæmu öðrum flokknum ekki í verð,“ segir Tjörvi Bjarnason, eigandi Matlands. „Við byrjuðum á að taka nokkra tugi af kílóum en enduðum á að sækja nokkra skammta og selja nokkur hundruð kíló á örfáum dögum. Allir vilja hreinleika og góðar vörur og við finnum greinilegan áhuga á að vita meira um upprunann,“ en á Matlandi er rík áhersla lögð á að segja söguna á bak við vörurnar sem eru allar merktar framleiðendum.

Neytendur sjá vöruúrval Matlands á vef verslunarinnar þar sem þeir ganga frá kaupunum og sækja svo annaðhvort vörurnar á afhendingarstað á Hrísateig eða fá sendar með heimsendingu um allt land eða sækja á sjálfsafgreiðslustöðvar Pikkoló sem fer fjölgandi.

Bein tenging við bændur

„Það er klárlega einn skemmtilegasti hluti rekstrarins að vera í beinum samskiptum við bændur. Birgjum hefur fjölgað jafnt og þétt og við finnum að fólk stendur með okkur. Þetta er nýstárleg söluleið og markmið okkar er að stytta leiðina á milli bænda og neytenda. Við viljum að bændum gangi vel og allt gegnsæi í söluferlinu er af hinu góða. Við kaupum af bændum og erum ekki umboðssala. Það er jákvætt að okkar mati að bændur hafi aukið val um að koma afurðum sínum í verð. Bændur eru líka að byggja upp sitt vörumerki með því að markaðssetja undir nafni búsins. Það eitt og sér getur skapað mikil verðmæti þegar til lengdar lætur.“

Mega ekki senda beint í verslanir

Bændur Akurs Organic rækta í Þistilfirði og eru því langt frá stórum markaðssvæðum. Þau eru með fullbúna vinnslu á Þórshöfn þar sem þau þvo allt, pakka og geyma.

Þau senda sjálf í nokkrar verslanir í nágrenni sínu á Norðausturlandi. „Annars staðar í okkar landshluta eru lífrænu gulræturnar okkar oft ekki fáanlegar því við megum ekki, að minnsta kosti ekki enn þá, senda beint til verslana. Krafa stóru birgjanna og verslanakeðjanna er sú að varan fari suður á lagera þeirra og þaðan í dreifingu í eigin verslanir,“ segir Ólína.

„Vandinn er ekki að neytendur vilji ekki vöruna, heldur að hún ratar ekki til þeirra.“ Ólína segir vörurnar því oft ekki skila sér aftur að sunnan. Hún nefnir dæmi um Nettó og Bónus á Egilsstöðum.

Fyrirkomulagið felur auk þess í sér mikla óþarfa flutninga. „Vara myndi ferðast frá okkur og til baka, um 1400 km. Þetta passar engan veginn við nútímaþjóðfélag.“

Vikulegar fyrirspurnir

Sölufélag garðyrkjumanna er stór partur af starfsemi Akurs Organic og „allir af vilja gerðir“. Ólína segir Sölufélag garðyrkjumanna hafa reynt að þrýsta á keðjurnar að taka á móti sendingum beint frá þeim, en það hafi ekki borið árangur, stóru birgjarnir vilji dreifa sjálfir í sínar verslanir. „Búðirnar þurfa að vinna með okkur. Kúnninn á að geta keypt vöruna,“ segir Ólína.

Hún segir þau fái margar fyrirspurnir í hverri viku um hvar sé hægt að fá gulræturnar þeirra á Austur- og Norðurlandi. Þau hafi reynt að svara fyrirspurnum með öðru móti. Hún nefnir dæmi um að Kvenfélag Aðaldælinga hafi verið að fá stóra sendingu frá þeim.

Ólína segir þau reyna að sporna við matarsóun og því sé mikilvægt að koma öðrum flokknum líka í sölu. Hún vonast eftir að markaðssetning á honum sem „safagulrótum“ nái enn meira flugi næsta haust.

Flutningskostnaður síaukinn

„Flutningskostnaður hefur hækkað gríðarlega síðastliðið ár, meðal annars vegna aukinna álaga ríkisins, og hefur það veruleg áhrif á reksturinn,“ segir Ólína. „Það má nefna að á einokunarsvæði Vörumiðlunar þá er flutningskostnaðurinn svo hár frá Akureyri til Hvammstanga að matvöruverslunin á Hvammstanga getur ekki verslað við okkur þó þau gjarnan vildu vegna þessa okurs.“ Ólína segir þau jafnvel þurfa að endurskoða reksturinn. „Við þyrftum að hækka verð vegna þessarar miklu aukningar á flutningskostnaði sem og hækkunar allra annarra aðfanga og jafnvel endurskoða hvort það sé gerlegt að vera með framleiðslufyrirtæki svona langt frá höfuðborgarsvæðinu. Ég myndi gjarnan vilja að núverandi ríkisstjórn ákveði sig hvort eigi að vera áfram byggð á öllu landinu eða ekki.“

Skylt efni: gulrætur | Akur

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...