Neytendur velja frekar gott en hollt
Fréttir 18. júní 2026

Neytendur velja frekar gott en hollt

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Nýtt norrænt samstarfsnet hefur það markmið að auka hlutfall jurtafæðis á matardisknum.

Norrænar ráðleggingar um mataræði styðja aukna áherslu á jurtafæði, en leiðbeiningar einar og sér breyta ekki matarvenjum. Nordic Gastronomy and Sensory Network skoðar áhrifaþætti og stefnir að greiningu og mögulegum lausnum.

Kolbrún Sveinsdóttir.

Hlutlægt skynmat notað

Nordic Gastronomy and Sensory Network (NGSN) er tveggja ára norrænt verkefni sem var ýtt úr vör samhliða ráðstefnu um skynmat og neytendur í Helsinki í lok apríl. Markmið þess er að styðja við sjálfbær matvælakerfi og bætta lýðheilsu. Verkefnið er leitt af Háskólanum í Helsinki.

15 sérfræðingar frá Norðurlöndunum á sviði skynmats, matargerðar- listar, næringar- og matvælafræði, tækni og fleiri greinum hittust á stofnfundinum og greindu áskoranir tengdar aukinni áherslu á sjálfbærari próteingjafa. Skynmat er vísindagrein sem notuð er til að meta skynræna eiginleika og hægt að nýta til að túlka upplifun neytenda. Matið er ekki huglægt heldur hlutlæg aðferð þar sem sérþjálfaðir aðilar meta eiginleika fæðu með skilningarvitunum. Kolbrún Sveinsdóttir er verkefnisstjóri hjá Matís og tekur þátt í verkefninu fyrir Íslands hönd. Hún segir að fólk sem sinni skynmati þurfi að hafa til að bera ákveðna eiginleika og næmi og gott vald á að lýsa því sem það upplifir á hlutlægan hátt. Slík greining komi að gagni í verkefninu.

Bragð og upplifun mikilvæg

Kolbrún segir að meðal þess sem hafi verið rætt á fyrsta fundi hópsins í Helsinki var upplifun fólks af því að borða jurtafæði, „hún virðist hafa mikil áhrif á val fólks á fæðu“. Hún segir að einnig komi til smekkur, hátt verðlag, menningarbundin viðhorf og rangfærslur á samfélagsmiðlum. Kolbrún segir að einnig hafi komið fram á fundinum að hugmyndir og umtal fólks um hátt vöruverð á til að mynda grænmeti og ávöxtum hafi líka áhrif. Það sé þó ekki alltaf í takti við eiginlegt verðlag.

Ljóst er að fólk fylgir ekki næringarráðleggingum sem gefnar eru út á Norðurlöndunum og byggja á vísindalegum rannsóknum. Þær eru endurskoðaðar reglulega og taka tillit til lýðheilsu fyrst og fremst, en nú er einnig byrjað að horfa til umhverfissjónarmiða.

Athuganir hafa sýnt með skýrum hætti að neysla á mat úr jurtaríkinu er of lítil miðað við næringarráðleggingarnar eins og sagt var frá í blaðinu í mars síðastliðnum.

Opinber stuðningur minni

Kolbrún segir opinberan stuðning við grænmetisframleiðslu almennt minni á Norðurlöndunum en við kjötframleiðslu. „Ég veit ekki hvort kemur á undan, hænan eða eggið, aukin kaup neytenda eða aukin framleiðsla.“ Hún segir að niðurstöður verkefnisins gætu haft áhrif á áherslur og stefnu stjórnvalda í stuðningi við matvælaframleiðendur og stefnu ríkis og sveitarfélaga í matarinnkaupum.

Ákall þátttökuþjóða verkefnisins um aukinn stuðning við garðyrkjubændur rímar við ummæli Axels Sæland, formanns garðyrkjudeildar Bænda- samtaka Íslands, í viðtali í blaðinu í maí 2025 um aukna sjálfbærni í garðyrkjuframleiðslu þar sem hann segir mikilvægt að búnir verði til „alvöru framleiðsluhvatar í gegnum stuðningskerfið svo raunhæft verði að auka hlutfall af innlendum garðyrkjuafurðum á markaði“.

Í verkefninu er tekið tillit til næringarráðlegginganna og staðbundinnar framleiðslu. Vonir standa til að verkefnið verði liður í að hvetja til aukinnar framleiðslu á mat úr jurtaríkinu, vöruþróunar nýrra afurða og aukinnar neyslu jurtaafurða. Hópurinn hyggst miðla ríkulega af upplýsingum úr ferlinu og þegar hafa ýmsar lausnir verið nefndar, aukin fræðsla um matvæli og veigameira hlutverk matargerðarlistar.

Skylt efni: hlið neytandans

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.