MR-ingar mótmæla
Mynd / Úr safni
Fréttir 19. mars 2026

MR-ingar mótmæla

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Stytta á kennslu í latínu í Mennta- skólanum í Reykjavík um ár og þessu mótmæla nemendur skólans. Latína gegnir margslungnu hlutverki í samfélaginu.

Til stendur að stytta kennslu í latínu um eitt ár í Menntaskólanum í Reykjavík en hún er aðeins kennd í máladeild. Nemendur á fornmáladeild hafa lengstum verið hlutfallslega fáir en Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor MR, segir aðgerðina vera til þess gerða að fjölga nemendum á fornmáladeild. Þar er áhersla á klassíska menntun í grísku og latínu, fornfræði og málvísindum og hefur hún löngum verið eitt af sérkennum lærða skólans.

Þetta forna tungumál, latínan, er hagnýt til að greina eðli tungumála sem af henni eru sprottin, setningabyggingu og til að dýpka málvitund. Meira kemur til því latína er alþjóðlegt tungumál grasafræðinnar og dýrafræðinnar. Hún er því mikið notuð í náttúruvísindum eins og læknar, líffræðingar og fleiri starfsstéttir hafa reynslu af þegar nefna þarf tegundir eða líkamsparta, lýsa bólgum, brestum í beinum, visnun í vefjum og öðrum kvillum. Slíkt alþjóðlegt fagtungumál gegnir því hlutverki í að tryggja ákveðið samræmi á milli landa.

Latína heyrist einnig töluvert í kennslustofum Garðyrkjuskólans, enda eiga allar plöntur, dýr og sveppir sín latnesku heiti úr tvínafnakerfi hins sænska Carls von Linné frá 1735, sem notað er um allan heim. Tvínafnakerfið byggir á því að ættkvísl tegundar sé fyrra heitið og það síðara auðkenni tegundina. Dæmi um þetta er Viola tricolor, þrenningarfjólan sem er einkennisblóm Garðyrkjuskólans en hún er af fjóluætt, Violaceae, þar sem -aceae er viðskeyti í kvenkyns fleirtölu og vísar til þess sem tilheyrir. Seinni hluti heitisins felur í sér að þrenningarfjólan er þrílit. Til gamans má geta að fjólur vaxa vel við íslenskar aðstæður, eru blómviljugar og ekki síst eru þær flauelsmjúkar á tungu og bragðið fágað.

Heiti tegunda geta verið með ýmsu móti í tungumálum og stundum villandi, latnesk heiti skera því ávallt úr um um hvaða tegund ræðir. Latínan er hvergi töluð en notagildi hennar í nútímasamfélaginu er þó töluvert og í fagsamfélagi náttúruvísindanna nauðsynlegt og ekki úr vegi að kynna sér þetta forvitnilega fornmál.

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...