Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Guðríður að tala við nýja nemendur skólans, mánudaginn 24. ágúst þegar kennsla hófst.
Guðríður að tala við nýja nemendur skólans, mánudaginn 24. ágúst þegar kennsla hófst.
Mynd / Bryndís Björk Reynisdóttir
Fréttir 11. september 2026

Mikill áhugi á garðyrkjunámi

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Garðyrkjuskólinn á Reykjum, sem nú heyrir undir Fjölbrautaskóla Suðurlands, tekur inn nýnema annað hvert ár og nú í haust mættu um 120 nemendur til leiks í garðyrkjunámið.

Um helmingur þeirra eru nýnemar og um helmingur eru fjarnemar sem eru að taka seinni hluta náms síns en nemendur í fjarnámi taka námið á hálfum hraða.

Almennt tekur námið tvo vetur, eða fjórar annir, en fjarnemar eru að jafnaði í skólanum í átta annir. „Vinsældir garðyrkjunámsins hafa verið stöðugar undanfarin ár og er þetta álíka stór hópur og hefur komið í námið síðustu ár. Að þessu sinni eru fjórar brautir kenndar; garð- og skógarplöntuframleiðsla, ylrækt, lífræn ræktun matjurta og skrúðgarðyrkja sem er löggilt iðngrein. Námsbraut skógar og náttúru og blómaskreytingabraut eru ekki kenndar að þessu sinni. Allar brautir eru einnig í boði í fjarnámi enda er Garðyrkjuskólinn eini skólinn í landinu sem býður upp á garðyrkjunám,“ segir Guðríður Helgadóttir, staðarhaldari á Reykjum.

Hún segir að fjarnemar þurfi þó að mæta í skólann í verklegar æfingar þrisvar sinnum á hverri önn og oftar þegar lengra dregur í náminu, enda eru garðyrkjugreinar verklegar greinar og mikilvægt að kenna nemendum einnig til verka.

Svipuð dreifing á brautir

„Dreifing nemenda á brautir er nokkuð jöfn, það eru um 35 nemendur á garð- og skógarplöntubraut og skrúðgarðyrkjubraut hvorri um sig, um 30 á lífrænu brautinni og um 20 á ylræktarbraut. Í gegnum tíðina hefur skrúðgarðyrkjubrautin verið vinsæl enda er það eina greinin innan garðyrkjunnar sem er löggilt iðngrein, en vissulega sveiflast vinsældir brauta yfirleitt í takt við tíðarandann í samfélaginu,“ segir Guðríður.

30 til 40 ára meðalaldur

Þegar Guðríður er spurð út í meðalaldur nemenda segir hún að hann sé einhvers staðar á milli 30 og 40 ár en nemendahópurinn sé á öllum aldri, frá tæplega tvítugu og upp úr. Konur eru um tveir þriðju hlutar nemenda en karlar eru þó í meirihluta á skrúðgarðyrkjubrautinni. Nemendur skólans koma af öllu landinu og eru með ákaflega fjölbreyttan bakgrunn, allt frá fólki með nokkrar háskólagráður yfir í fólk sem hefur ekki lokið mikilli formlegri menntun, en allir nemendur eiga það sameiginlegt að brenna af áhuga á garðyrkju. „Skólastarfið fer mjög vel af stað, kennsla hófst mánudaginn 24. ágúst síðastliðinn á verklegri viku. Þá mættu allir nemendur á staðinn og líf og fjör alls staðar á skólalóðinni, inni í gróðurhúsum, úti í skógi og allt um kring. Það er óhætt að segja að veturinn leggist mjög vel í starfsfólk og nemendur, enda fátt skemmtilegra en að hitta fólk sem deilir sama áhugasviði,“ segir Guðríður kát og hress. Þá má geta þess að endurmenntun Græna geirans heldur fjölbreytt námskeið á fagsviðum skólans og byggir á áratuga reynslu. Hægt er að finna upplýsingar um námskeið á hlekknum www.fsu.is/ is/namid/gardyrkjuskolinn-reykjum/ gardyrkjuskolinn-namskeid.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...