Útskriftarhópur Menntaskólans að Laugarvatni 23. maí, ásamt Jónu Katrínu, skólameistara.
Útskriftarhópur Menntaskólans að Laugarvatni 23. maí, ásamt Jónu Katrínu, skólameistara.
Mynd / Ívar Sæland
Fréttir 29. júní 2026

Mikil aðsókn nýnema

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Rétt rúmlega fimmtíu nýstúdentar útskrifuðust úr Menntaskólanum að Laugarvatni laugardaginn 23. maí við hátíðlega athöfn í sal skólans. Mikil aðsókn er að skólanum í haust því um 54 nýnemar verða teknir inn.

Fyrir eru tveir bekkir fullir, einn bekkur á náttúruvísindabraut og einn bekkur á félags- og hugvísindabraut.

„Heildarfjöldi nemenda verður rúmlega 150. Heimavistin verður stútfull og nánast hver einasti nemandi verður á vistinni eins og staðan er núna,“ segir Jóna Katrín Onnoy Hilmarsdóttir skólameistari.

Tveir nemendur urðu dúxar við skólann við brautskráninguna, þau Eva Rut Jóhannsdóttir frá Hveragerði og Óskar Ingi Eyþórsson frá Selfossi en þau voru bæði með einkunnina 8,75. Semidúx varð Hrefna Erla Hannesdóttir frá Kópavogi með einkunnina 8,63.

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.