Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Megan Auður, listakona.
Megan Auður, listakona.
Menning 22. september 2026

Hátíðin Hamraborg Festival

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Hamraborg Festival fór fram nýverið, en hátíðin hefur átt sess í hjarta Kópavogsbúa frá árinu 2021 og gerði þriggja ára samning við bæjarfélagið, nú 2026-2028. Segir í kynningu „Hátíðin er ástarbréf til Hamraborgar – til íbúanna, arkitektúrsins, fortíðarinnar, framtíðarinnar og andans.“

Má nærri geta að hér ber ýmislegt á góma sem gaman væri að nefna, en til að mynda kynntu listamennirnir Ívar Alma og Riccardo Vailai samstarfsverkefni sitt sem titlað er LEIKVÖLLUR SAGRA. Samsetning úr íslensku og ítölsku, en orðið sagra þýðir hátíð.

Um ræðir líflega og margbrotna rannsókn sem sprettur upp úr spurningum um bernskuna, þroskann og það hvernig meðvitund okkar breytist þegar fjarlægðin við sakleysi æskunnar eykst – en fengu listamennirnir innblástur í kenningar Thomas Hirschhorn og rannsóknir Aldo van Eyck á almenningsrýmum. Beindu þeir Ívar og Riccardo sjónum sínum sérstaklega að leikvellinum sem fyrirbæri, þar sem frjálst ímyndunarafl og léttleiki mætast á oft einstakan hátt.

 Ívar Alma og Riccardo Vailai.

Útkoman varð opin og lifandi rannsóknarmiðstöð þar sem kannað er hvernig fólk tengist leikvöllum og almenningsrýmum á ólíkum æviskeiðum, og hvernig skilningur okkar á leiknum sjálfum þróast með aldrinum.

Verkið er ekki einungis til sýnis heldur kallar eftir virkri þátttöku áhorfenda, sem spila í raun stórt hlutverk. Gestum er boðið að ganga inn í strúktúrinn og svara spurningum sem þar eru settar fram. Viðbrögð og svör fólks verða þannig að virkum hluta af áframhaldandi rannsóknarferli listamannanna, en strúktúr þeirra mun rísa á Listatúni og snerta þannig á hinum ýmsu spurningum er varða leikvelli og hlutverk þeirra.

Riccardo Vailati er sjálfstæður sýningarstjóri, rithöfundur og myndlistarmaður, Ívar Alma er listamaður og útskriftarnemi frá LhÍ árið 2024.

Annað afar áhugavert er verk listakonunnar Megan Auður. Verk hennar er framhald frá síðustu hátíð þar sem hún fyllir upp í sprungur í gangstéttum hverfisins með keramik. Megan hefur unnið ötullega að uppfyllingunni og hefur eins og staðan er fyllt í hátt í 200 sprungur. Byggir verkið á hugmyndafræði Kintsugi og orðum Mariu Therezu Alves sem í stuttu máli á því hver erfitt er að snúa aftur til fyrra horfs þegar hin upprunalega heild hefur glatast. Viðgerðirnar séu áminning um að ekkert snýr aftur í upprunalegt horf, og er viðgerðin sjálf viðurkenning á sárinu sem felur þar með í sér ábyrgð á að annast þann skaða sem orðið hefur.

Megan Auður er þverfagleg listakona og aktívisti, þekkt fyrir verk sín sem snerta áföll og bata með það fyrir augum að skapa umgjarðir fyrir úrlausn. Megan útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá HKU University of the Arts í Utrecht árið 2020.

Þótt hátíðin Hamraborg Festival sé nú liðin er um að gera að líta á vefsíðu þeirra og kynna sér þann efnilega hóp listamanna sem tóku þátt nú í ár. 

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 5. nóvember 2026

Stjörnuspá vikunnar

Sporðdrekinn hefur beðið spenntur eftir einhverju sem hann taldi dramatískt, en ...

TR trónir á toppnum
Líf og starf 4. nóvember 2026

TR trónir á toppnum

Taflfélagi Reykjavíkur gekk vel í þeim sveitakeppnum sem fram fóru síðustu helga...

Rosaleg blöð að norðan
Líf og starf 4. nóvember 2026

Rosaleg blöð að norðan

„Það væri afrek að komast í þrjú grönd.“ Þetta sagði Ragnar Hermannsson stórspi...

Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts
Líf og starf 3. nóvember 2026

Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts

Í skjóli þess að vera undir feldi í haustveðrunum má velta ýmsu fyrir sér. Til a...

Frumsýning á Kvennaráð
Líf og starf 3. nóvember 2026

Frumsýning á Kvennaráð

Leikfélag Eyrarbakka frumsýnir leikritið Kvennaráð eftir leikskáldið og rithöfun...

Herdís Kolka stendur vaktina
Líf og starf 3. nóvember 2026

Herdís Kolka stendur vaktina

Ein er sú búð á landi hér sem er flestum búðum smærri, það er Djúpavíkurbúðin í ...

Vísnahornið
Líf og starf 3. nóvember 2026

Vísnahornið

Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku: Er af grjót...

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...