Meira en helmingur bænda telur efnahagsaðstæður slæmar
Meira en helmingur bænda telur efnahagsaðstæður slæmar.
Ríflega helmingur bænda eða 53% telur aðstæður í efnahagslífinu á Íslandi vera slæmar fyrir búrekstur sinn. Aðeins 8% telja þær góðar, 39% sögðu þær hvorki góðar né slæmar.
Þetta er niðurstaða í könnun Bændablaðsins á meðal bænda í Bændasam- tökum Íslands. Þátttaka í könnuninni var 16,1% meðal félagsmanna í Bændasamtökunum.
Könnunin stóð frá 21. til 28. apríl.

