Matvælaverð gæti haldið áfram að hækka
Utan úr heimi 11. nóvember 2026

Matvælaverð gæti haldið áfram að hækka

Höfundur: Þröstur Helgason

Matvælaverð í Bandaríkjunum hefur hækkað um 2,5 prósent á síðustu tólf mánuðum og aukinn framleiðslukostnaður bænda bendir til þess að verðþrýstingurinn kunni að halda áfram. Þetta kemur fram í fréttaskýringu New York Times þar sem rætt er við bændur og söluaðila á bændamarkaði í Tennessee.

Þótt matvælaverð hafi staðið í stað síðasta mánuðinn hafa fjölmargir kostnaðarliðir í landbúnaði hækkað. Bændurnir sem rætt er við nefna meðal annars launakostnað, eldsneyti, fóður, áburð, tryggingar, heilbrigðiskostnað og ýmsar rekstrarvörur.

Eggjaframleiðandinn Ed Vaught Jr. segir verð á eggjum frá búi sínu hafa tvöfaldast á sex árum og kosta nú níu dali tylftin. Að hans sögn hefur verðhækkunin verið nauðsynleg til að mæta auknum kostnaði, meðal annars vegna vinnuafls, viðhalds beitilands og trygginga. Fóðurkostnaður hefur einnig hækkað verulega. Poki af sérstöku kjúklingafóðri hefur hækkað um nærri fimm dali frá árinu 2025.

Kostnaður við umbúðir hefur sömuleiðis aukist. Vikulegur kostnaður Vaughts vegna eggjabakka hefur hækkað úr um 230 dölum í 500 dali á einu ári. Hann segist þó bíða eins lengi og mögulegt er með verðhækkanir og aðeins grípa til þeirra þegar reksturinn sé við það að skila tapi eða einungis standa undir kostnaði.

Svipaða sögu segja grænmetisbændur. Verð á salatfræjum hefur hækkað um tæp níu prósent á tveimur árum og kostnaður við ýmsar aðrar rekstrarvörur hefur einnig aukist. Bændur standa jafnframt frammi fyrir erfiðleikum við að ráða og halda starfsfólki og íhuga því að hækka laun.

Tollar hafa einnig áhrif. Blómaræktendur á markaðnum segja 7,5 prósenta toll hafa átt þátt í að hækka kostnað við blómlauka, hnýði, plöntur og fræ. Þá hefur vatnskostnaður aukist, sem vegur þungt eftir mikla hita.

Framleiðendurnir segja þó erfitt að velta öllum kostnaðarhækkunum út í verð. Neytendur séu orðnir varkárari í innkaupum og bændur óttist að frekari verðhækkanir dragi úr sölu.

Þrýstingurinn kemur því úr báðum áttum: Framleiðslukostnaður heldur áfram að aukast á sama tíma og kaupendur eru orðnir viðkvæmari fyrir verði. 

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...