Eitt af verkum Ólafs Sveinssonar, sem mun sýna á samsýningu 18 listamanna í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit dagana 14.-15. nóvember næstkomandi.
Eitt af verkum Ólafs Sveinssonar, sem mun sýna á samsýningu 18 listamanna í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit dagana 14.-15. nóvember næstkomandi.
Menning 12. nóvember 2026

Maður er manns gaman

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Árið 2025 hóf aðflutti Mývetningurinn hún Anna Dagbjört Andrésdóttir verkefni sem hún nefndi Maður er manns gaman. Markmiðið var að bjóða upp á viðburði í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit með það fyrir augum að auðga menningu í Þingeyjarsveit, íbúum að kostnaðarlausu. Verkefnið gekk vonum framar og hlaut Anna menningarverðlaun Þingeyjarsveitar nú í ár. 

Nú stendur til að opna listasýningu í félagsheimilinu Skjólbrekku í Mývatnssveit, en um ræðir samsýningu átján aðila, ólíks listafólks sem hefur það sameiginlegt að tengjast Þingeyjarsveit á einhvern hátt. Listafólkið vinnur með ólíka miðla, en má nefna eitt þeirra, Ólaf Sveinsson sem kemur víða við í list sinni. Hann bæði teiknar, málar, ristir í tré og þrykkir á silki ásamt því að tálga fugla og skera út, en verk hans einkennast af lífsgleði og nákvæmni þegar kemur að því að fanga líðandi stund.

Útskornir fuglar eftir Ólaf Sveinsson.

Auk þess að sækja oft innblástur í náttúruna eða upplifanir segist Ólafur oft heillast af gömlum farartækjum og vélar, en skemmtileg dæmi um slík augnayndi finnst gjarnan í verkum hans. Hann minnist veru sinnar á Patreksfirði í kringum tvítugt þar sem hann gerði vatnslitaseríu af sundurtekinni loðnubræðslu „..fallega ryðguð raunsæum rómantískum blæ..“ Bætir við að kona eigandans hafi að lokum keypt af honum seríuna, þakkað fyrir að nú væri þetta rusl ódauðlegt, og því loks hægt að henda því!

Fyrir áhugasama er vert að heimsækja Mývatnssveitina, sýningin stendur yfir dagana 14-15 nóvember á milli klukka 12-16 báða daga. Vert er að taka fram að Maður er manns gaman er heiti á menningarviðburðum Mývetnings sem eru haldnir reglulega í Skjólbrekku, styrktir af Þingeyjarsveit og Landsvirkjun.

Verk eftir Ásgrím Þórhallsson.
Verk eftir Halldóru Eydísi Jónsdóttur. Hún frumsýnir jólalínuna frá HALLDORA á sýningunni

Skylt efni: myndlist

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...