Búið er um hinn látna í vöggu ásamt lífrænu efni áður en hann er færður inn í hylkið þar sem ferlið hefst.
Búið er um hinn látna í vöggu ásamt lífrænu efni áður en hann er færður inn í hylkið þar sem ferlið hefst.
Mynd / Mat Hayward/Getty Images fyrir Recompose
Utan úr heimi 11. nóvember 2026

Lögleiða jarðgerð eftir dauða

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Ástralir í Nýju Suður-Wales hafa fest í lög að jarðgerð eftir dauða sé heimil. Þar með bætist þriðji möguleikinn við jarðsetningu og brennslu eftir andlát. 18 mánaða tímabil útfærslu eftirlits með lögunum gengur nú í garð.

Þverpólitísk sátt ríkti um frumvarp óháðs þingmanns um jarðgerð eftir dauða. „Ferlið er náttúrulegt og mjúkt, fyrir suma hjálpar það í sorginni,“ segir Emma Hurst, þingmaður þings Nýju Suður-Wales, sem segir það bæði geta verið kolefnishlutlaust og sparað mikið landrými.

Bandarískt fyrirtæki þróaði aðferðina

Lagafrumvarpið var kynnt af óháðum þingmanni, Alex Greenwich, sem ferðaðist til Bandaríkjanna og Þýskalands í rannsóknarerindum. Sambærileg lagasetning er þegar í gildi í sumum héruðum Þýskalands og 14 ríkjum Bandaríkjanna. Washington var fyrsta ríkið til að lögleiða aðferðina árið 2019.

Fyrirtækið Recompose hefur um árabil þróað ferlið í kringum jarðgerð eftir andlát og opnuðu fyrstu útfararþjónustuna sem er sérhæfð í aðferðinni í Seattle.

Recompose bjóða upp á heildræna útfararþjónustu þar sem nosturslega er hugað að hverju skrefi í ferlinu. Þjónustan nær yfir 8–12 vikur og aðstandendur geta fengið moltuna í lok tímabilsins. Recompose vinna einnig með samtökum sem vinna að náttúruvernd og aðstandendur geta gefið moltuna til þeirra.

Tekur 8–12 vikur

Jarðgerðarferlið (terramation) felur í sér að hinn látni er færður í hitastýrðar aðstæður ásamt lífrænu efni, svo sem alfa-alfa, hálmi, trjákurli og blómum auk hvata sem flýta niðurbrotsferlinu. Hylkinu, þar sem umbreytingin fer fram, er lokað og því vaggað dulítið sem hleypir lofti í ferlið. Við hreyfinguna bindast hvatar súrefninu og næra örverur sem finnast náttúrulega í líkamanum, sem leiðir til þess að líkaminn brotnar hratt niður. Hitamyndun á sér stað við niðurbrotið sem tekur um 5–7 vikur. Jarðgerðar leifarnar eru látnar hvíla í aðrar 3–5 vikur og að þeim liðnum standa eftir um 110 kg af mannlegri moltu. Moltan er næringarríkt náttúrulegt efni, laust við sýkla vegna hitans sem myndast. Ferlið er sambærilegt við aðra moltugerð.

Kolefnishlutlaust og sparar landrými

„Ég hlakka til að nýta mér þessa þjónustu í fjarlægri framtíð,“ segir Cameron Murphy, þingmaður verkamannaflokksins í Ástralíu. Lögin sem ganga undir heitinu „mannlegu moltu-lögin“ voru samþykkt í ástralska þingi Nýju Suður-Wales í lok október.

Sátt ríkti um frumvarpið í þinginu en einstaka þingmenn settu fram fyrirvara. Susan Carter, þingmaður frjálslyndra, samþykkti frumvarpið en vakti athygli á að tryggja þyrfti að hinir látnu nytu virðingar. Emma Hurst, sem berst fyrir réttindum dýra á þinginu, sagði ávinning umhverfisins mikinn, ferlið gæti verið kolefnishlutlaust og sparað stór landsvæði sem fara undir kirkjugarða. Hún sagði mannlegu moltuna gefa tækifæri á að rækta tré og gróður og heiðra þannig líf og í hægu ferlinu gæfust mörg tækifæri til hátíðlegra athafna til að minnast viðkomandi, svo sem í upphafi og lok ferlisins. Hjá Recompose eru aðstandendur einnig boðnir velkomnir meðan á ferlinu stendur.  

Skylt efni: Ástralía

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...