Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Bárður, Björn og Gauti Páll ásamt Jóhönnu Björgu forseta SÍ.
Bárður, Björn og Gauti Páll ásamt Jóhönnu Björgu forseta SÍ.
Mynd / Róbert Lagerman
Líf og starf 23. júní 2026

Tvíburar í landsliðsflokk!

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Áskorendaflokki Skákþings Íslands er nýlokið. Mikil keyrsla var á mótinu, teflt dag eftir dag í heila viku, níu kappskákir. Til mikils var að vinna á mótinu, en efstu tvö sætin gefa þátttökurétt í landsliðsflokki Skákþings Íslands, þar sem alla jafna tefla tíu til tólf manns allir við alla. Reyndar er þetta í síðasta sinn í bili sem áskorendaflokkur veitir sæti í landsliðsflokki – á aðalfundi Skáksambandsins var tillaga um nýjan lokaðan meistaraflokk samþykkt. Í næsta áskorendaflokki munu því þrjú efstu sætin, í stað tveggja, gefa þátttökurétt í meistaraflokki.

Bárður Örn Birkisson þótti ef til vill ekki líklegur til afreka eftir fyrsta dag mótsins þar sem hann fékk hálfan vinning af tveimur. En díselvélin var sett í gang og 6½ vinningur fékkst í næstu sjö skákum. Glæsilegur árangur hjá Bárði. Tvíburabróðir hans, Björn Hólm Birkisson, endaði einnig með sjö vinninga og var ofar Bárði að oddastigum og vann mótið í ár. Fjórir skákmenn fengu sex vinninga. Tveir þeirra höfðu verið lengst af í toppbaráttunni í mótinu, Óskar Víkingur Davíðsson og greinarhöfundur. Ánægjulegt er að sjá metnað Óskars við borðið eftir nokkurra ára hlé frá skákiðkun, en hann var á sínum tíma Norðurlandsmeistari í sínum aldursflokki. Greinarhöfundur hafði ákveðið fyrir um ári síðan, og haldið því markmiði merkilegt nokk fyrir sjálfan sig, að vinna þetta tiltekna mót. Skellti hann sér m.a til Hollands á skákmót um hvítasunnuhelgina til undirbúnings. Háleit markmið skiluðu miklu sjálfstrausti og það var ekki fyrr en í lokaumferðinni sem möguleikinn rann honum úr greipum. En ef maður miðar til tunglsins þá gæti maður náð til stjarnanna.

Tveir aðrir skákmenn fengu sex vinninga eftir góðan lokasprett, þeir Sigurbjörn Björnsson Fide-meistari og Sigurbjörn Hermannsson, núverandi meistari Skákskólans. Af 34 keppendum hækkaði enginn meira á stigum en Pétur Úlfar Ernisson, eða um heil 98 stig.

Af öðrum skákviðburðum má nefna að Skákdeild Fjölnis hélt fyrir skömmu glæsilegt sumarmót þar sem 83 börn mættu til leiks. Þau fengu öll verðlaun, en Hagkaup, Dominos, Boltamaðurinn og Bókabúð Grafarvogs gáfu öll verðlaunin ásamt því að Rótarý Grafarvogi gaf verðlaunabikara. Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson hélt fjöltefli fyrir mótið. Þeir Anh Hai Tran og Emil Finnsson Fenger fengu báðir fullt hús í mótinu. Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband. 

Umsjón: Gauti Páll Jónsson gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Stjörnuspá vikunnar
Líf og starf 5. nóvember 2026

Stjörnuspá vikunnar

Sporðdrekinn hefur beðið spenntur eftir einhverju sem hann taldi dramatískt, en ...

TR trónir á toppnum
Líf og starf 4. nóvember 2026

TR trónir á toppnum

Taflfélagi Reykjavíkur gekk vel í þeim sveitakeppnum sem fram fóru síðustu helga...

Rosaleg blöð að norðan
Líf og starf 4. nóvember 2026

Rosaleg blöð að norðan

„Það væri afrek að komast í þrjú grönd.“ Þetta sagði Ragnar Hermannsson stórspi...

Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts
Líf og starf 3. nóvember 2026

Litið inn á við í ljósi sjálfstrausts

Í skjóli þess að vera undir feldi í haustveðrunum má velta ýmsu fyrir sér. Til a...

Frumsýning á Kvennaráð
Líf og starf 3. nóvember 2026

Frumsýning á Kvennaráð

Leikfélag Eyrarbakka frumsýnir leikritið Kvennaráð eftir leikskáldið og rithöfun...

Herdís Kolka stendur vaktina
Líf og starf 3. nóvember 2026

Herdís Kolka stendur vaktina

Ein er sú búð á landi hér sem er flestum búðum smærri, það er Djúpavíkurbúðin í ...

Vísnahornið
Líf og starf 3. nóvember 2026

Vísnahornið

Sigrún Haraldsdóttir lýsir ástkærri fósturjörð okkar í góðri stöku: Er af grjót...

Leiðtogar og landbúnaður
Líf og starf 2. nóvember 2026

Leiðtogar og landbúnaður

Þegar Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov (eða Garbatsjov eins...