Beðin mótuð.
Beðin mótuð.
Mynd / Aðsend
Á faglegum nótum 12. nóvember 2026

Látum garðyrkjuhendur standa fram úr ermum

Höfundur: Bryndís Björk Reynisdóttir
Bryndís Björk Reynisdóttir.

Að virkja áhuga, drifkraft og forvitni hjá kröftugum einstaklingum í garðyrkjunámi er ábyrgðarhlutverk, ekki síst þegar umræðan í samfélaginu fjallar um þjóðaröryggismál í tengslum við fæðu- og framleiðsluöryggi en einnig sjálfbærni, nýsköpun og fullnýtingu afurða. Það er nú líka þannig að eitt er að draga sinn lærdóm úr bókum og annað að draga lærdóminn frá unnum verkum og fenginni reynslu. Það sem mögulega gæti toppað lærdóm frá unnum verkum er að fá að njóta ávinnings þeirrar vinnu.

Í síðustu lotuviku haustannarinnar í Garðyrkjuskólanum FSu bauðst nemendum á garðyrkjufram- leiðslubrautum að gróðursetja hvítlauk í landi skólans. Það er óhætt að segja að nemendur sýni matjurtaframleiðslu gífurlegan áhuga og voru þó nokkrir sem stukku á vagninn þrátt fyrir stuttan aðdraganda þar sem passa þurfti uppá veðurviðvaranalausan dag í lotuviku. Það voru því kampakátir, vaskir og bomsuklæddir nemendur sem stikuðu í gúmmígöllum niður í matjurtabeð eftir afmæliskaffi haustannarinnar í skólanum.

Garðyrkjufélag Íslands styrkti nemendur skólans með fimm mismunandi yrkjum af hvítlauk- sútsæði. Eins og í allri ræktun bregðast yrkin mismunandi við aðstæðum eins og úrkomu, hitastigi, ræktunarefni, frárennsli, áburðargjöf og þess háttar og er það hluti verkefnisins að sjá hvernig yrkjunum reiðir af í þeim aðstæðum sem þeim er boðið. Það er þó ekki gulltryggt að draumaútkoman verði alltaf raunin ef við horfum til breytileika íslensks sumars þegar kemur að veðráttu.

Einnig er hægt að nefna að gróðursett var í sendinn jarðveg sem bættur var með sterkri, vélgerðri hrámoltu sem unnin var úr mötuneyti skólans á síðustu haustönn og hefur fengið að þroskast síðan þá. Þannig er unnið þvert á áfanga Garðyrkjuskólans t.d. að efni sem fengið er út úr moltugerð í einum áfanga nýtist í matjurtaræktun í öðrum áfanga.

Hvítlauksútsæðið er sett niður að hausti í september-október. Einn hvítlauksgeiri kemur til með að skila einum hvítlauk að ári við góðar aðstæður. Geirarnir eru settir niður með laukkökuna niður og mjóa toppinn upp, nokkuð þétt eða 10-15 cm á milli geira og ca. 20 cm á milli raða. Hvítlaukurinn þarf 1-2ja mánaða kaldörvun/ kuldatímabil til að skipta sér í geira en það er ástæðan fyrir gróðursetningu að hausti. Þrátt fyrir langan ræktunartíma er hvítlauksræktun tiltölulega einföld og getur launað ræktandann ríkulega við uppskeru. Mælt er með áburðargjöf í upphafi vaxtar snemmsumars.

Þetta er í annað skiptið sem Garðyrkjufélagið færir skólanum hvítlauksútsæði en í haust voru uppskorin um 6 kg af hvítlauk eftir fyrstu tilraunina og mátti sjá heilmikinn mun á því hvernig yrkjunum reiddi af. Af þeim 5 yrkjum sem gróðursett voru haustið 2025, fengu þessi yrki bestu einkunnina:

  • Fljótsprottni Primor hvítlaukurinn stóð fyrir sínu með nettum, ljósum og fallegum laukum.
  • Sabagold og Thermidrome gáfu fallega og stóra lauka en voru einnig með minnstu afföllin frá útsæði að uppskeru.

Þess má einnig geta að undirbúningur fyrir ræktun í óupphituðu plasthúsi á Reykjum næsta vor er einnig í gangi. Þar fá nemendur að taka þátt í vali á tegundum sem vantar herslumuninn á að ná að þroska sínar afurðir í stuttu, íslensku sumri, fjölærar plöntur sem eiga erfitt með umhleypingasaman íslenskan vetur nú eða tegundir sem er einfaldlega mikil spenna fyrir.

Plasthúsið var reist af nemendum Garðyrkjuskólans haustið 2022 og það var svo í lotuviku sl. september sem nemendur lögðu dúk á gólfið og smíðuðu 8 karma úr timbri. Fyrirtækin Samhentir og Byko styrktu þetta verkefni með dúk og timbri og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.

Það má því gera ráð fyrir að þessir kampakátu, vösku og bomsuklæddu nemendur stiki gúmmígallaklæddir eins og litla gula hænan í matjurtargarðinn næstkomandi ágúst/september og njóti árangursins af hvítlauksræktuninni.

Höfundur er er brautarstjóri garðyrkjuframleiðslubrauta í Garðyrkjuskólanum á Reykjum FSu.

Skylt efni: Garðyrkjuskólinn

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f