Landsmót eru óður til íslenska hestsins
Skoðun 5. ágúst 2026

Landsmót eru óður til íslenska hestsins

Höfundur: Trausti Hjámarsson
Trausti Hjálmarsson.

Landsmót hestamanna er einstakur viðburður sem enginn gleymir sem upplifir, en mótið er heillar viku óður til okkar einstaka hestakyns. Þegar þetta er ritað er undirritaður staddur á Hólum í Hjaltadal og virðist það engu skipta hversu oft maður sækir Landsmót, alltaf eru þau jafn spennandi og skemmtileg.

Fjöldi hrossa í sýningum og keppni skiptir hundruðum, gera má ráð fyrir að hátt í átta þúsund gestir frá a.m.k. tuttugu þjóðlöndum mæti í brekkurnar og fjöldi knapa, starfsmanna mótsins og sjálfboðaliða skiptir vafalaust hundruðum. Það er ánægjulegt að sjá hve mikil vinna hefur verið unnin til að hafa mótið sem glæsilegast og hefur heimafólk lagt ótrúlega mikið á sig til að gestum mótsins og þátttakendum, tví- og fjórfættum, líði sem best.

Landsmótið er á tveggja ára fresti nafli alheimsins í veröld íslenska hestsins, hvort sem er hérlendis eða erlendis. Til viðbótar við þá mörgu erlendu gesti sem sækja mótið er ótrúlegur fjöldi til viðbótar sem fylgist með mótinu á netinu, bæði fréttum af því en einnig beinu streymi af keppnisgreinunum sjálfum.

Það er því langt í frá úr lausu lofti gripið þegar talað er um að íslenski hesturinn sé öflugasti sendiherra þjóðarinnar. Hann er í raun eilífur, því hann endurnýjar sig frá einu ári til annars og er í hugum allra þeirra sem elska hann fullkomið afkvæmi alúðar og metnaðar þeirra sem sinna ræktunarstarfi hans. Auðvitað eru í heimi hestsins eins og annars staðar ákveðnar stjörnur á hverjum tíma en ímyndin er óháð einstaklingunum og snýst um hæfileika og lundarfar íslenska hestakynsins sem sannar það alla daga að margur sé knár þótt hann sé smár.

Sú aðdáun sem íslenski hesturinn nýtur á sér margar og samverkandi ástæður. Sem betur fer höfum við alla tíð borið gæfu til þess að halda honum hreinræktuðum og verja hina upprunalegu eiginleika hans fyrir hvers kyns blöndun. Er það vegna þess að innflutningur á lifandi hestum og erfðaefni úr hrossum er með öllu bannaður og mikilvægt er að halda í þá vernd.

Óumdeilt aðalsmerki hestsins okkar er hin blíða lund hans, en hann nýtur einnig virðingar fyrir hve sterkbyggður, heilsuhraustur og harðger hann er við krefjandi íslenskar aðstæður og erfið verkefni upp um fjöll og firnindi.

Hin afdráttarlausa sérstaða er þó fólgin í töltinu sem sameinar einstaka mýkt og augljósan glæsileika ásamt skeiðinu þegar hesturinn er tekinn til kostanna. Skartar íslenski hesturinn sínu fegursta á tölti og skeiði og hrífur alla með sér.

Þessi glæsti sendiherra okkar ber ekki eingöngu landi og þjóð fagurt vitni, því ég hef áður sagt að þegar grannt er skoðað er hann ósvikinn kyndilberi íslensks landbúnaðar og leggur mikið af mörkum til verðmætasköpunar hans bæði með beinum hætti og óbeinum. Á erlendum vettvangi er hann ekki síður driffjöður mikillar verðmætasköpunar og vafalaust einnig ómældra ánægjustunda barna og fullorðinna.

Landsmótin á Íslandi kallast á við heimsmeistaramót íslenska hestsins sem haldið er annað hvert ár í einhverju Evrópulandanna en þangað koma að jafnaði 10–15.000 gestir og keppendur frá um 20 þjóðlöndum. Sú ánægjulega hefð hefur skapast að íslenska liðið sé hið sigursælasta á mótinu og ber það metnaði í íslenskri hestamennsku fagurt vitni.

Þessi metnaður og fagmennska er ekki síður til sýnis hér á Hólum og ljóst er að framtíð íslenska hestsins og íslenskrar hrossaræktar er björt.

Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands.

Skylt efni: Landsmót hestamanna

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...