Landbúnaður í Borgarfirði
Skoðun 15. maí 2026

Landbúnaður í Borgarfirði

Höfundur: Hermann B. Valsson og Melkorka Gunnarsdóttir
Hermann B. Valsson.

Okkur sem stöndum að Borgarbyggðarlistanum hefur verið tíðrætt um lýðheilsu og er hún rauði þráðurinn í okkar stefnu. En hvað er hún, þessi blessaða lýðheilsa? Hún hefur verið skilgreind sem samheiti yfir skipulagðar aðgerðir samfélagsins sem miða að því að viðhalda og bæta heilsu, líðan og lífsgæði fólks. Ólíkt hefðbundinni heilbrigðisþjónustu, sem beinist fyrst og fremst að einstaklingnum, horfir lýðheilsa á heildina – samfélagið okkar í heild. Á þessum grunni viljum við byggja okkar starf í sveitarfélaginu. Lýðheilsa snýst ekki aðeins um líkamlega heilsu heldur einnig andlega heilsu og hvernig við styðjum við hana í daglegu lífi. Þetta snýst ekki um eitt afmarkað hlaup eða einstakan viðburð, heldur um heildarsýn á tækifæri íbúa til hreyfingar, virkni og heilsueflingar.

Við viljum að lýðheilsa verði leiðarljós í öllum ákvörðunum sem teknar eru í samfélaginu og hafi raunveruleg áhrif á daglegt líf fólks. Skipulag göngustíga og gangstétta er lýðheilsa. Græn svæði, útsýni og aðgengi að náttúru er lýðheilsa. Staðir eins og bókasöfn, listasöfn, tónleikastaðir og önnur menningar- og samfélagsrými, og hvernig við skipuleggjum þau, eru líka lýðheilsa.

Melkorka Gunnarsdóttir.

Einn af þeim þáttum sem hefur ekki verið nefndur er landbúnaður, af þessu leiðir að Borgarbyggðarlistinn lítur á landbúnaðarland sem hluta af grunninnviðum samfélagsins, ekki síður en vegi, stíga eða veitukerfi. Sveitarfélagið býr yfir einstökum náttúrulegum kostum, frjósömu ræktunarlandi, góðu aðgengi að heitu vatni, hagstæðu loftslagi til ræktunar og ríkulegum ferskvatnsauðlindum. Þessi samsetning skapar veruleg tækifæri til að efla innlenda matvælaframleiðslu, auka ylrækt, þróa akuryrkju og byggja upp fjölbreyttara og sjálfbærara atvinnulíf í sveitum Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.

Lýðheilsa snýst einnig um fæðuöryggi, loftslag og gæði þess matar sem við höfum aðgang að. Með því að styðja við ræktun og vinnslu í nærsamfélaginu drögum við úr innflutningi, minnkum kolefnisspor og tryggjum ferskari og hollari vöru fyrir íbúa – sem er bein fjárfesting í heilsu samfélagsins. Sama á við um skógrækt, endurheimt vistkerfa og vernd líffræðilegs fjölbreytileika, þar sem sveitarfélagið hefur alla burði til að vera leiðandi í á landsvísu.

Þessi vinna verður þó aðeins farsæl ef hún er unnin í samráði við bændur og heimamenn. Því leggur Borgarbyggðarlistinn áherslu á að frumkvæði að breytingum, svo sem í skipulagi fjallskila eða annarri þjónustu við landbúnað, komi alltaf frá þeim sem þekkja landið best og byggi á skýrum vilja þeirra sem málið varðar.

Við erum því miður að upplifa það að sauðfé og kúm fækkar, einnig eru þónokkur kúabú í viðbót á undanþágu og ekki víst hvort þau verði starfrækt áfram þegar henni lýkur. Mörg gróðurhús hafa skipt um hlutverk og hýsa nú hjólhýsi og tjaldvagna. Erum við virkilega kominn á þann stað að það hérað sem hýsir Deildartunguhver, vatnsmesta hver Íslendinga, sé að dragast saman í ræktun? Þessu þarf við breyta, þarna eru sóknarfæri!

Í Covid var mikið talað um fæðuöryggi Íslendinga, er það bara gleymt? Hefur fæðuöryggi bara minnkað, eða ætlum við að vera háð innflutningi á grænmeti sem við getum auðveldlega ræktað á Íslandi? Vissulega erum við háð leyfum og kvótum sem koma frá ríkinu og ekki á okkar höndum, en við á Borgarbyggðarlistanum höfum þá skoðun að þetta sé ekki landi og þjóð til framdráttar í stóra samhenginu. Við höfum góða tengingu inn í ríkisstjórn Íslands og teljum að við getum haft þar áhrif. Við viljum með íbúum sveitarfélagsins leggja í þá vinnu að breyta þessu, skapa atvinnu, spara innflutning og minnka kolefnisspor.

Sterk tengsl milli íbúa og bænda eru einnig mikilvæg fyrir þekkingu og virðingu fyrir landbúnaði. Með fræðslu, opnum dögum á bæjum, samstarfi við skóla og auknum tækifærum til að kaupa beint frá býli má efla skilning á mikilvægi innlendrar framleiðslu og styrkja samfélagslega samstöðu. Landbúnaður byggir á traustum innviðum og því eru góðir vegir, öruggt rafmagn, fjarskipti og vatnsbúskapur forsendur þess að bændur geti sinnt störfum sínum og tryggt stöðuga framleiðslu. Uppbygging innviða er því ekki aðeins þjónusta við bændur heldur grunnforsenda fyrir öflugu og góðu samfélagi.

Sveitarfélagið býr yfir landgæðum og mikilli reynslu sem við getum nýtt mun betur, ekki aðeins til hagsbóta fyrir sveitarfélagið heldur fyrir alla landsmenn. Það myndi skila sér í ferskari vöru og meiri gæðum afurða í landbúnaði. Það er sannarlega hluti af lýðheilsu að hafa þvílíkan munað við bæjardyrnar!

Ágæti sveitungi úr Borgarbyggð og Skorradalshreppi, tökum saman höndum og förum í sókn fyrir okkur öll, það skiptir okkur miklu máli.

Setjum x við A laugardaginn 16. maí í Borgarbyggð og Skorradalshreppi!

Hermann er lýðheilsufræðingur og skipar 2. sæti á A lista í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshreppi. Melkorka er búvísindamenntuð og skipar 9. sæti á A lista í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshreppi.

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...