Kindur á beit á Hveravöllum.
Kindur á beit á Hveravöllum.
Mynd / eks
Fréttir 4. ágúst 2026

Landbótaáætlanir uppfærðar

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

Land og skógur vinnur nú að innleiðingu reglugerðar um sjálfbæra landnýtingu.

Landeigendur, rétthafar og aðrir hagaðilar eiga von á að haft verði samband við þá á næstu mánuðum í tengslum við endurskoðun landbótaáætlana, sem nær til fjögurra flokka landnýtingar; beitar, akuryrkju, framkvæmda og umferðar fólks og ökutækja.

Mikillar endurnýjunar þörf

Endurskoðunin er hluti af innleiðingu reglugerðar um sjálfbæra landnýtingu frá 2024. Hún nær til fjögurra flokka sem sett eru viðmið fyrir og er skrifuð á grundvelli laga um landgræðslu. Núverandi landbótaáætlun var gerð á grundvelli reglugerðar um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu og rennur út í lok árs 2026. 

„Ljóst er að endurnýja þarf allmargar landbótaáætlanir, einkum þar sem ástand svæða hefur lítið breyst síðustu tíu ár. Í öðrum tilfellum kann beitarnýting að hafa lagst af eða ástand lands batnað það mikið að ekki er þörf á frekari aðgerðum,“ segir Sigþrúður Jónsdóttir, formaður vinnuhóps við innleiðingu reglugerðarinnar og sérfræðingur hjá Landi og skógi.

Forgangsverkefni Lands og skógar er að greina hvar þörf er á endurskoðun eða endurnýjun þessara áætlana eða hvort nýting á þessum svæðum teljist nú sjálfbær. Við greininguna er byggt á bestu fáanlegu gögnum um ástand lands, meðal annars fjarkönnunargögnum, gervitunglamyndum, gögnum úr rannsóknum Grólindarverkefnisins og nánari vettvangsskoðunum þar sem þörf er á.

„Helsta breyting frá fyrra fyrirkomulagi er sú að ábyrgðin nær nú ekki eingöngu til þeirra sem eru í gæðastýrðri sauðfjárrækt, heldur til allra þeirra sem nýta viðkomandi beitarland,“ segir Sigþrúður.

Önnur svæði skoðuð

„Endurnýjun þeirra landbótaáætlana sem snúa að beitarnýtingu og eru nú að renna sitt skeið er í forgangi,“ segir Sigþrúður. „Að því loknu þarf að fara yfir hvort landnýting sé sjálfbær á öðrum svæðum sem falla undir ákvæði reglugerðarinnar, þar á meðal á öðrum beitarlöndum en beitarlöndum sauðfjár. Reglugerðin tekur einnig til landnýtingar vegna akuryrkju, umferðar fólks og ökutækja og framkvæmda og því þarf í kjölfarið að meta hvort slík nýting kalli á landbótaáætlanir.“

Um stöðu vinnunnar segir Sigþrúður að haft hafi verið samband við alla ábyrgðaraðila þeirra landbótaáætlana sem um ræðir og þeim gerð grein fyrir því að vinna við endurskoðun áætlananna sé hafin og þurfi að ljúka fyrir áramót. „Í kjölfarið verður, á grundvelli fyrirliggjandi mats, unnið að endurskoðun eða endurnýjun landbótaáætlana þar sem þörf er á í samráði við hlutaðeigandi aðila.“ Hún segir Land og skóg muni leiðbeina eigendum eða rétthöfum lands um gerð landbótaáætlunar og útvega rafrænt form til að vinna hana í. 

Skylt efni: landnýting

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...