Móðir og afkvæmi.
Móðir og afkvæmi.
Mynd / Anna Guðrún Grétarsdóttir
Á faglegum nótum 24. apríl 2026

Kynbótasýningar vorsins

Höfundur: Halla Eygló Sveinsdóttir

Opnað verður á skráningar á kynbótasýningar þriðjudaginn 28. apríl. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum heimasíðu RML en á forsíðunni er flýtihnappur sem skráð er í gegnum. Á forsíðu WorldFengs er einnig hægt að skrá hross til sýningar. Nánari leiðbeiningar varðandi skráningar er að finna á heimasíðu RML.

Í meðfylgjandi töflu má sjá hvaða sýningarstaðir eru í boði og lokaskráningardag á hverja sýningu en skráningu þarf að vera lokið á miðnætti þess dags. Ef sýning fyllist lokast sjálfkrafa á sýninguna þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umsjónarmaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Til að fá aðstoð er hægt að hringja í síma 516-5000, eða senda tölvupóst á netföngin halla@rml.is og hross@rml.is. Við bendum á að utan dagvinnutíma eru starfsmenn RML ekki til staðar til að svara síma eða tölvupósti og því hvetjum við eigendur/umsjónarmenn hrossa til að skrá tímanlega.

RML áskilur sér rétt til að fækka dögum á sýningum ef skráningar eru færri en búist er við og sameina sýningar ef þess gerist þörf. Sýning verður ekki haldin nema lágmarksfjöldi skráninga náist, sem eru 30 hross. Hér að neðan má sjá sýningaáætlun vorsins og hvenær eru síðustu skráningardagar.

Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðunni www.rml.is, þegar þær eru tilbúnar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.

Sköpulagsdómar – aukinn sveigjanleiki

Á aðalfundi FEIF í febrúar var samþykkt tillaga um aukinn sveigjanleika varðandi sköpulagsdóma. Nú er valkvætt Móðir og afkvæmi. hvort hross sem eru sex vetra eða eldri mæti í sköpulagsdóm hafi þau áður hlotið sköpulagsdóm 5 vetra eða eldri, þannig að ef hross var sköpulagsdæmt í fyrra 5 vetra þá má láta þann dóm standa og hrossið þarf eingöngu að mæta í hæfileikadóm til að hljóta fullnaðardóm. Öll hross sem koma til dóms fjögurra og fimm vetra gömul þurfa að fara í sköpulagsdóm áður en þau fara í hæfileikadóm. 

Þá hefur því einnig verið breytt að sköpulagsdómur og hæfileikadómur þurfa ekki lengur að fara fram á sömu sýningu til að hross hljóti fullnaðardóm. Hross sem hlýtur sköpulagsdóm að vori getur mætt síðar á árinu í hæfileikadóm og þar með hlotið fullnaðardóm. Aldrei er heimilt að mæta eingöngu með hross til hæfileikadóms án þess að fyrir liggi byggingardómur. Hafi hross verið byggingardæmt 4 vetra og kemur síðan aftur til dóms 6 vetra eða eldra þarf það að mæta aftur í byggingardóm.

Ef eigandi ákveður að skrá hross eingöngu í hæfileikadóm er það alltaf nýjasti sköpulagsdómur hrossins sem gildir inn í fullnaðardóm. Nánar má lesa um þessar breytingar á heimasíðu RML.

Sýningagjöld og fleira

Verð fyrir fullnaðardóm er 46.100 kr. en fyrir sköpulagsdóm/hæfileikadóm 35.100 kr. Ganga þarf frá greiðslu um leið og hrossið er skráð. Hægt er að greiða með debet- eða kreditkortum, ekki er hægt að greiða með millifærslu. Um leið og hrossið hefur verið skráð og greiðsla framkvæmd, birtist hrossið strax inni á viðkomandi sýningu. Mynd / Anna Guðrún Grétarsdóttir. Ef það gerist ekki er rétt að kanna hvort eitthvað hafi farið úrskeiðis við skráninguna.

Endurgreiðslur á sýningagjöldum koma því aðeins til greina ef forföll eru tilkynnt með tölvupósti fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir upphaf sýningarviku á netfangið hross[hjá]rml.is. Endurgreiddar eru 27.660 kr. fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og 21.060 kr. fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Þessar endurgreiðslur miðast við núverandi forsendur. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.

Endurgreiðslukrafa vegna slasaðra hrossa þarf að hafa borist fyrir 1. júlí. Skipti knapi út hrossi í sýningu og velji að sýna annað hross en það sem skráð er, ber sá hinn sami fulla ábyrgð gagnvart þeim sem greiddi fyrir plássið. Greiðsla fyrir það hross sem skipt var út verður notuð til greiðslu fyrir hrossið sem kom í staðinn. 

Viðbrögð vegna óveðurs

RML hefur ákveðið að ef veður hamlar sýningarhaldi muni eftirfarandi viðbrögð verða viðhöfð:

  • Ef sýning fellur alfarið niður eru sýningargjöld endurgreidd að fullu og RML tekur ekki neina ábyrgð á að koma þeim hrossum sem skráð voru, að á öðrum sýningum.
  • Ef sýning er þegar hafin en fella þarf niður stakan dag vegna veðurs er sýningargjald endurgreitt fyrir þau hross sem skráð voru þann dag. RML ber ekki ábyrgð á að úthluta þessum hrossum öðrum plássum. Þar sem RML heimilar að skipta megi út skráðum hrossum getur verið að hross sé þegar fulldæmt en samkvæmt röðun á sýningunni hafi átt að sýna það á degi sem féll niður. Þá þarf knapi eða eigandi að viðkomandi hrossi að sýna fram á hvaða hrossi var skipt út. Ekki er endurgreitt fyrir hross sem þegar hefur hlotið dóm á sýningunni.

Að lokum

Minnum á eftirfarandi: 

  • Ekki er hægt að skrá hryssur eða geldinga til sýningar nema búið sé að taka úr þeim stroksýni til DNA-greiningar og staðfesting á því liggi fyrir í WF.
  • Allir stóðhestar verða að vera DNA-greindir svo og foreldrar þeirra. 
  • Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts. 
  • Ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt. 
  • Ef örmerki finnst ekki í hrossi sem mætir til dóms ber að örmerkja það á staðnum og taka stroksýni úr nös til DNAgreiningar á ætterni, með þeim kostnaði sem af því hlýst fyrir eiganda/forráðamann. Örmerki og DNA-sýni þurfa ávallt að fylgjast að.

Ekki er hægt að skrá hross til sýningar nema ofantaldar kröfur séu uppfylltar og skráning liggi fyrir í WorldFeng. Hrossum sem koma inn á sýningu í stað annarra skráðra hrossa og uppfylla ekki þessi skilyrði, verður án undantekninga vísað frá sýningu strax hjá mælingamanni. Sýningargjald er ekki endurgreitt í slíkum tilfellum.

Ef þess er nokkur kostur þá er fyrir alla aðila farsælast að skrá rétt hross á sýningu strax í upphafi því það einfaldar alla vinnu á  sýningarstað. Munum því eftir að taka sýni og röntgenmyndir í tíma. Sjáðu allt efni og áhöld til fluguhnýtinga í vefverslun Veiðihornsins. 

Höfundur er ráðunautur í hrossarækt hjá RML.

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...