Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá Orkusáttmálanum (ECT).  Úrsögnin tekur gildi árið 2027 í samræmi við ákvæði samningsins.
Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá Orkusáttmálanum (ECT). Úrsögnin tekur gildi árið 2027 í samræmi við ákvæði samningsins.
Fréttir 12. maí 2026

Ísland segir sig frá Orkusáttmálanum

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Tilkynnt hefur verið um úrsögn Íslands frá Orkusáttmálanum (ECT). Úrsögnin tekur gildi árið 2027 í samræmi við ákvæði samningsins.

Samningurinn hefur verið gagnrýndur fyrir að vera hindrun fyrir ríki sem vinna að orkuskiptum og umbreytingu í endurnýjanlega orku. Á annað hundrað gerðarmál gegn ríkjum hafa verið höfðuð á grundvelli samningsins, meðal annars vegna aðgerða sem ríki hafa gripið til vegna orkuskipta. Á undanförnum árum hafa Evrópusambandið og að minnsta kosti 10 Evrópuríki sagt sig frá samningnum. 

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. 

Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins kemur fram að samningurinn hafi verið undirritaður árið 1994 fullgiltur af Íslands hálfu árið 2015. Markmið samningsins séu meðal annars að tryggja fjárfestavernd og liðka fyrir óheftum viðskiptum með orku yfir landamæri. 

Þátttaka Íslands í samningnum hefur verið lítil sem engin frá upphafi. Ísland hefur ekki tekið virkan þátt í starfsemi hans og engar vísbendingar eru um að íslensk fyrirtæki hafi nýtt sér ákvæði samningsins, hvorki hvað varðar fjárfestavernd né úrlausn ágreiningsmála. Þá hafa hvorki íslensk stjórnvöld né fyrirtæki verið aðilar að gerðarmálum á grundvelli samningsins. Það sé mat ráðuneytisins að samningurinn sé ekki í samræmi við áherslur Íslands í orku- og loftslagsmálum.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, setti af stað vinnu við að undirbúa úrsögn Íslands árið 2025 með hliðsjón af stefnu Íslands í orku- og loftslagsmálum. Samningurinn veitir fyrirtækjum rétt til að höfða mál gegn ríkjum fyrir sérstökum lokuðum gerðadómi, utan hefðbundins dómskerfis, vegna aðgerða sem geta haft áhrif á arðsemi fjárfestinga þeirra. Hægt er að höfða mál gegn ríkjum allt að 20 árum eftir úrsögn þeirra frá samningnum. 

Skylt efni: orkumál | raforkumál | ect

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.