Geir Gunnar segir í viðtalinu að fyrirtækið taki á sig þau frávik sem koma fram í velferð dýranna á myndbandi Einars Loga.
Geir Gunnar segir í viðtalinu að fyrirtækið taki á sig þau frávik sem koma fram í velferð dýranna á myndbandi Einars Loga.
Mynd / Sigurður Már Harðarson
Fréttir 13. nóvember 2026

Innbrotin í Stjörnugrís líklega fleiri en fjögur

Höfundur: Þröstur Helgason

Einar Logi Pétursson hefur játað fjögur innbrot í svínabú Stjörnugríss en Geir Gunnar Geirsson, forstjóri fyrirtækisins, segir þau að öllum líkindum fleiri. „Við teljum að myndskeið hafi sýnt fimmta innbrotið og teljum að þau hafi jafnvel verið fleiri,“ segir Geir Gunnar í viðtali við Útvarp Bændablaðið. Hann segir fyrirtækið taka ábyrgð á mistökum og frávikum í dýrahaldinu sem sjáist í birtum myndböndum.

Geir Gunnar segir Einar Loga hafa brotist inn fyrst í maí og lagt svínabúið gersamlega í rúst og til sé mikið myndefni úr því innbroti sem sé kannski ekki fyrir viðkvæma. „Við höfum ekki deilt því eða sýnt á spilin þar. Þar var mikið af dauðum dýrum og slösuðum dýrum og allur búnaður var lagður í rúst, bæði á skrifstofu starfsmanna og starfsmannaaðstöðu og fóðurherbergi, fóðurrými og innréttingar og þess háttar. Það hafa engar myndbirtingar komið frá því ennþá.“

Hann brýst svo í annað skipti inn á Kjalarnesi, heldur Geir Gunnar áfram, „og leggur allt aftur í rúst eftir að hann slekkur á myndavélinni. Og svo birtir hann annað myndskeið úr öðru búi á Kjalarnesi. Miðað við það sem við sjáum á þeim myndum grunar okkur að það sé úr fleiri innbrotum í það bú. Það sem við sjáum þar er ekki eðlilegt ástand, fjöldi dauðra dýra.“

Geir Gunnar segir að í búum Stjörnugríss hafi fundist myndavélar sem Einar Logi hafi komið þar fyrir. Þannig hafi málið verið upplýst því á myndum, sem þessar vélar hafi tekið, hafi innbrotsþjófurinn sést athafna sig.

„Tökum mistök og frávik á okkur“

Geir Gunnar segir í viðtalinu að fyrirtækið taki á sig þau frávik sem koma fram í velferð dýranna á myndbandi Einars Loga. Þar vísar hann sérstaklega til sárs á baki eins gríss sem er í stíu með öðrum grísum.

„Þetta er fæðingagalli og stundum höfum við fengið dýralækni til að sauma þetta en í önnur skipti þá grær þetta nú með tímanum. En þetta er vissulega óheppilegt.“

Spurður hvort þessi grís hefði ekki átt að vera í sér stíu svarar Geir Gunnar:

„Klárlega og við myndum segja að þetta séu mistök og frávik. Hann hefði átt að vera í sér stíu. En málið er að þessi grís vex vel og dafnar vel og sá sem að hugsar um þetta tiltekna bú er búinn að starfa þarna í 15 ár. Það má ekki aðskilja grísi og setja á eina í stíu í mjög langan tíma. Þannig að rétt viðbrögð þarna hefðu verið að slátra honum. Eða grípa fyrr inn í. Þannig að við tökum það alveg á okkur.“

Geir Gunnar segir innbrotið til rannsóknar hjá lögreglu og hann viti ekkert um stöðu málsins.„Við fáum ekkert að vita hvar það er statt í kerfinu.“

Hér má hlusta á allan þáttinn.

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...