Hvað þýðir góður samningur?
Mynd / Úr safni
Skoðun 23. mars 2026

Hvað þýðir góður samningur?

Höfundur: Ásgeir Geirsson
Ásgeir Geirsson.

Manni hefur verið kennt, að ef maður veit ekki, sé best að spyrja. Því er þessi grein skrifuð.

Aðildarsinnar halda því fram, að aðlögun að ESB muni ekki byrja um leið og umsókn er send inn.  

Evrópussambandið sjálft er þó sérlega skýrt þegar kemur að því ferli sem mun eiga sér stað. Þegar heimasíða sambandsinssins er skoðuð, birtist okkur skýrt hvað gerist um leið og umsókn er send inn.

„Í aðildarviðræðum býr umsóknarríkið sig undir að innleiða lög og staðla ESB, einnig þekkt sem regluverk ESB.“

Ég velti fyrir mér hvort þeir sem vilja aðild séu ragir við að benda á það sem hér kemur fram. Orðalag þeirra hljómar oftar en ekki svo, að Evrópusambandið muni ganga í Ísland en ekki öfugt.  Ef stefna Viðreisnar er skoðuð kemur það fram svart á og hvítu, að fyrst eigi að spyrja almenning hvort halda eigi áfram „viðræðum“, en ekki aðlögun

„Á þeim forsendum leggur Viðreisn höfuðáherslu á að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið að undangengnu samþykki þjóðarinnar í almennri atkvæðagreiðslu sem allra fyrst. Það þýðir að fyrst verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna og síðar um samninginn, þegar hann liggur fyrir.”

Þessi texti sem er fengin af heimasíðu Viðreisnar gefur til kynna, að aðlögun muni ekki eiga sér stað áður en kosningabærir menn hafa sagt sitt. Þeir nefna ekki það ferli sem byrjar um leið og umsókn er send inn. Flokkur forsætisráðherra er skýrari í sinni ályktun og er það gott: 

“Samfylkingin vill stefna að fullri aðild Íslands að Evrópusambandinu með upptöku evru að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu.”

Eftir allt þetta hefur grunnspurningunni ekki verið svarað. Hvað er góður samningur? Aðild að Evrópusambandinu hlýtur að þýða lögleiðingu á öllu því regluverki sem fylgir inngöngu. Nú hafa margir talað um einhverskonar sérlausnir. Sambandið sjálft gefur til kynna að ekkert slíkt sé í boði. Evrópusambandið segir:

„Í gegnum samningaviðræðurnar fylgist framkvæmdastjórnin með framvindu umsóknarríkjanna í þessum umbótum og heldur ráðinu og Evrópuþinginu upplýstum um þetta með reglulegum skýrslum og samskiptum.“

Sé miðað við þessi orð skal ríkið taka upp „bætt“ regluverk á meðan aðlögun á sér stað. 

Því spyr ég: Hví halda þeir sem vilja aðild upplýsingum á borð við þær sem hafa verið reifaðar hér frá hinum almenna kjósanda og láta sem sú atkvæðagreiðsla sem er væntanleg snúi ekki að beinni aðild að Evrópusambandinu? Hví leggja þeir upp með að einhverskonar samningar muni eiga sér stað, þar sem höfðingjarnir í Evrópusambandinu segja skýrt að þetta sé aðlögun, en ekki samningar um eitthvað,- kannski. Ég óska eftir að stjórnmálamenn séu heiðarlegir í umræðunni og stundi ekki blekkingar gagnvart kjósendum. Ef ríki vill inn í Sambandið skuli atkvæðagreiðsla snúa að því, ekki einhverskonar pakkaskoðun. Hafi fólk hug á slíku mæli ég með heimasíðu Evrópusambandsins þar sem allt sem pakkinn hefur upp á bjóða er til staðar.  Óþarfi er að stunda óheiðarleika í þessari umræðu og auðvitað ættu landsmenn að vera spurðir hvort þeir vilji ganga í Evrópusambandið eður ei. 

Höfundur er ritstjóri www.tenko.is

Skylt efni: esb

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...