Svona líta húsin út á teikningu, sem verða byggð úr nytjavið í Fljótsdal í nýja byggðakjarnanum á jörðinni Hamborg. Hvort húsið verður um 100 fermetrar að stærð. Byggingakostnaður er um 600.000 kr. á fermetrann.
Svona líta húsin út á teikningu, sem verða byggð úr nytjavið í Fljótsdal í nýja byggðakjarnanum á jörðinni Hamborg. Hvort húsið verður um 100 fermetrar að stærð. Byggingakostnaður er um 600.000 kr. á fermetrann.
Mynd / Aðsend
Fréttir 19. mars 2026

Hús byggð úr íslenskum nytjavið

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Nú stendur til að byggja tvö einbýlishús úr íslenskum nytjaviði í nýjum byggðakjarna í Fljótsdal á jörð sem heitir Hamborg.

Um verður að ræða 25 íbúða kjarna þar sem húsin tvö verða. „Þetta er hugsað þannig að bændur í Fljótsdal voru þeir fyrstu sem hófu markvissa bændaskógrækt á jörðum sínum um 1970. Þar sem töluverður nytjaviður er nú þegar farinn að falla til, væri það rökrétt að Fljótsdælingar byggðu fyrstu íbúðarhúsin á landinu úr íslenskum nytjavið. Í dalnum er sögunarstöð á bújörðinni Víðivöllum ytri og heitir stöðin Skógarafurðir ehf. Skógarafurðir útvega efni og saga hjá sér, burðarvirki, klæðningar úti og inni, hurðir og glugga. Timbrið er að mestu héðan úr dalnum en efnið í burðarvirkið er sitkagreni úr Öskjuhlíð, í þetta fyrra hús. Tandrabretti á Eskifirði festi kaup á því timbri og seldi okkur það. Aðallega verður notað í húsin lerki, ösp og sitkagreni og hugsanlega eitthvað af stafafuru,“ segir Helgi Gíslason, sveitarstjóri Fljótsdalshrepps.

Einar Birgir Kristjánsson, sem á og rekur Tandrabretti, segir verkefnið með húsin tvö vera frábært. „Já, já, þetta leggst allt mjög vel í mig og vonandi nær þessi nýi byggðakjarni, sem þarna hefur verið skipulagður vinsældum og verður fljótt fullbyggður. Við eigum mestallt Öskjuhlíðartimbrið til enn þá og það hentaði vel í burðarviði húsanna. Við stóðum líka fyrir því að haldið var námskeið í Hallormsstað í að styrkleikaflokka þetta timbur, svo hægt væri að nota þetta timbur í byggingar og sóttum það ásamt þeim sem reka sögunarmyllu í Fljótsdal. Þetta er skemmtilegt verkefni en til þess að þetta geti orðið alvöru valkostur í framtíðinni þarf úrvinnsla að þróast talsvert. Þarf stærri og sjálfvirkari sögunarmyllur svo að íslenskt timbur geti verið samkeppnisfært við innflutt timbur,“ segir Einar Birgir.

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.

Lausn á vísnagátu
Líf&Starf 24. nóvember 2025

Lausn á vísnagátu

Lausnin á vísnagátu Guðbjörns Sigurmundssonar í síðasta Bændablaði er orðið mál.

Skákmánuðurinn janúar
Líf&Starf 3. febrúar 2025

Skákmánuðurinn janúar

Janúarmánuður hefur lengi verið frekar stór skákmánuður á Íslandi. Í þeim mánuði...

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann
Líf&Starf 13. desember 2024

Þörfnumst heilbrigðara sambands við tímann

Carl Honoré, sem gjarnan hefur verið kallaður rödd alþjóðlegu Hæglætishreyfingar...

Sækja áhrif til Suður-Evrópu
Líf&Starf 9. október 2024

Sækja áhrif til Suður-Evrópu

Í síðustu úthlutun Matvælasjóðs fengu bændur í Syðra-Holti í Svarfaðardal rúmleg...

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi
Líf&Starf 14. ágúst 2024

Brautryðjandi í búskap með íslenska hesta í Noregi

Ingebjørg Helkås Vaa fæddist í Noregi 14. júlí 1933, yngst fimm systkina. Hún va...

Stjörnuspá vikunnar
Líf&Starf 2. júlí 2024

Stjörnuspá vikunnar

Vatnsberinn veit vart í hvorn fótinn hann á að stíga þessa dagana. Lífið virðist...