Hið raunverulega verkefni er fram undan
Mynd / ál
Skoðun 11. september 2026

Hið raunverulega verkefni er fram undan

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Eftir marga mánuði af samræðum, viðræðum, rökræðum og hreinu rifrildi var niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst sú að ekki skyldi hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Eins og komið hefur fram hér og annars staðar þá var ég á móti aðildinni og aðildarviðræðunum og var niðurstaðan því í takt við mínar óskir og mína sýn á það hvar hagsmunum Íslands og íslensks landbúnaðar sé best borgið.

Myndarlegur meirihluti Íslendinga kaus gegn aðildarviðræðum og var meirihlutinn þeim megin í öllum kjördæmum nema Reykjavíkurkjördæmunum tveimur – og þar var stuðningsfólk aðildarviðræðna færra en margir höfðu ætlað.

Samt sveif ekki á mann nein sigurvíma þegar úrslitin lágu fyrir. Allt of stór hluti vors og sumars hafði farið í þessar kosningar og undirbúning fyrir þær. Bændasamtökin lögðust í mikla og ítarlega upplýsingaöflun og greiningu á stöðu landbúnaðar í ESB og var sú vinna grundvöllur ályktunar aukabúnaðarþings. Ég hef áður sagt – og stend við það enn – að fáir hafi nálgast þessar kosningar af sömu yfirvegun og fagmennsku og bændur.

En eftir alla þessa vinnu þá erum við á sama stað og við vorum þegar boðað var til kosninganna. Ýmis verkefni hafa setið á hakanum og bíða þess nú að vera unnin. En andrúmsloftið er annað og lævi blandnara en það var í vor. Kosningabaráttan var hörð og þótt við bændur höfum lagt okkur fram um að sýna öllum hlutaðeigandi þá virðingu sem fólk á almennt skilið, þá verður að viðurkenna að það sama er ekki hægt að segja um alla sem tóku þátt í baráttunni, jafnt þá sem vildu Nei og Já.

Ef marka má umræðu í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum er takmarkaður vilji til að mæta samborgaranum á miðri leið, að reyna að sjá og skilja sjónarmið annarra. Það er mjög miður, en vonandi er aðeins um tímabundið ástand að ræða.

Stærsta verkefnið sem snýr að okkur bændum eru viðræður við ríkið um starfsumhverfi bænda og landbúnaðarins, en framlengdir búvörusamningar renna út í árslok 2027. Ríkisstjórnin stendur frammi fyrir sögulegu tækifæri til að stuðla að raunverulegri uppbyggingu og sókn í íslenskum landbúnaði og matvælaframleiðslu. Margur þingmaðurinn og ráðherrann sagðist í sumar einmitt vilja veg íslensks landbúnaðar sem mestan og ég vona að það hafi verið í einlægni mælt, en ekki eingöngu í hita kosningabaráttunnar.

Margt þarf að gera og til margs er að vinna. Markmið okkar bænda hafa ekkert breyst. Við þurfum starfsumhverfi sem felur í sér fyrirsjáanleika til lengri tíma litið, starfsumhverfi sem stuðlar að nýliðun og fjárfestingu í greininni og starfsumhverfi sem tryggir bændum viðunandi tekjur fyrir sína vinnu og framleiðslu.

Hagsmunir bænda eru samofnir hagsmunum neytenda. Öflug innlend matvælaframleiðsla er forsenda raunverulegs fæðuöryggis. Þá má ekki gleyma því að samkeppni innlendra og erlendra matvæla verkar í báðar áttir. Mikið sakleysi þarf til að trúa því að heildsalar myndu ekki njóta góðs af ef þeir losnuðu við samkeppnina frá innlendri framleiðslu.

Þjóðaratkvæðagreiðslan er að baki, en hið raunverulega verkefni er fyrir höndum og ég treysti því að við bændur munum finna í stjórnvöldum og stjórnmálamönnum bandamenn og samstarfsfólk sem vinna mun með okkur að uppbyggingu til framtíðar.

Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands.

Skylt efni: pistill formanns

Með hendur í vösum
Líf&Starf 8. júlí 2026

Með hendur í vösum

„Sjáðu ... hann er með vösum!“ Þessi setning heyrist óvenju oft þegar konur sýna...

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f