Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum sameinast undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum sameinast undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands.
Fréttir 16. júní 2026

HÍ og Hólaskóli í Háskólasamstæðu

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir

Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum sameinast undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands þann 1. júlí næstkomandi. Hagsmunasamtök, stéttarfélög og starfsmenn Hólaskóla eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt fyrirkomulagið.

Háskólinn á Hólum mun bera heitið Háskóli Íslands á Hólum og verður núverandi rektor Hólaskóla forseti aðildarskólans. Störf þeirra kennara sem eru ráðnir ótímabundið færast til Háskóla Íslands og nemendur sem stunda nám við Hólaskóla fá að ljúka sínu námi samkvæmt því námsskipulagi sem er í gildi.

Áhyggjur að sérþekking glatist

Bændasamtök Íslands, Félag tamningamanna og Landssamband hestamannafélaga eru meðal þeirra sem hafa lýst yfir áhyggjum af stöðu hestafræðideildar Hólaskóla við þessa sameiningu. Í umsögn Bændasamtaka Íslands um frumvarpið segir að „Bændasamtökin óttast að sérhæfð þekking kennara og starfsmanna við Háskólann á Hólum á sviði hestafræði, verklegrar þjálfunar og rannsóknarvinnu gæti veikst og tapast, t.a.m. vegna breytinga á ákvörðunarvaldi eða tilfærslu verkefna.“ Bændasamtökin og Landbúnaðarháskólinn segja vera raunhæfa hættu á því að sérhæfð þekking og faglegt sjálfstæði glatist innan stærri eininga. Þá hafa BHM og Félag íslenskra náttúrufræðinga gagnrýnt óskýrt orðalag hvað varðar tilfærslu starfsfólks sem skapar óvissu um kjör þeirra.

Rektorar jákvæðir

Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum, segist ekki hafa áhyggjur af sameiningunni. Hólmfríður leggur áherslu á að háskólasamstæður þekkist erlendis með þeirri áherslu að efla sérhæfða háskóla á landsbyggðinni. „Með stofnun háskólasamstæðunnar mun starfsfólk og nemendur hestafræðideildar fá óheftan aðgang að allri þeirri stoðþjónustu, styrkjakerfi og öðru sem til staðar er við Háskóla Íslands. Þar að auki hafa stjórnvöld skuldbundið sig til að byggja upp sérhæft kennslu- og rannsóknahúsnæði á hesthúsasvæðinu ásamt því að kaupa hesthúsið Brúnastaði. Það eru því mikil tækifæri sem skapast með stofnun háskólasamstæðunnar til að halda áfram að efla hestafræðideildina til framtíðar íslenska hestinum og starfsemi tengdri honum til heilla.“

Þá verði stofnað samstarfsráð sem mun fara með mikilvægt hlutverk í stefnumótun og ákvörðunum um þróun náms innan aðildarháskólans. „Ákvarðanir um grundvallarbreytingar á starfsemi og námsskipan aðildarháskóla eins og t.d. starfsemi og námskipan hestafræðdeildar verða ekki teknar nema með einróma samþykki í samstarfsráði,“ segir Hólmfríður.

Nemendur Háskólans á Hólum fá aðgang að aukinni þjónustu með sameiningunni, svo sem aðgang að sálfræðiþjónustu og bókasafni HÍ. „Það má í raun segja að heimur nemendanna við Háskólann á Hólum muni stækka og verða fjölbreyttari með stofnun háskólasamstæðunnar,“ segir Hólmfríður.

Áhersla á að tryggja fjármagn

Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, er einnig jákvæð gagnvart sameiningunni. Hún leggur áherslu á að tryggja fjármagn og aðstöðu. „Í þessu samhengi er rétt að minna á að stofnun háskólasamstæðu er í eðli sínu þríhliða aðgerð, þ.e. Háskóla Íslands, Háskólans á Hólum og stjórnvalda,“ segir Silja. „Það verður jafnframt að tryggja óskoraðan stuðning stjórnvalda við skuldbindingar í tengslum við fjármál, húsnæðismál og alla nauðsynlega aðstöðu fyrir kennara og nemendur bæði í Hjaltadal og á Sauðárkróki.“ Silja segir að höfuðáhersla verði lögð á að stjórnvöld viðurkenni kostnað í tengslum við bæði hross og nemendur að fullu. Silja segir að Hí muni styrkja sérstöðu hestafræðideildarinnar og það sé nú þegar áhugi á samstarfi við deildina frá bæði Menntavísindasviði og Heilbrigðisvísindasviði. „Þá trúi ég því að á alþjóðavettvangi liggi tækifæri til vaxtar sem við gætum nýtt í auknum mæli til framtíðar, enda er íslenski hesturinn afar vinsæll um allan heim og margfalt fleiri íslenskir hestar í notkun og ræktun á erlendri grundu en hér heima.“

Góður sigur strjálbýlisins
Líf&Starf 26. maí 2026

Góður sigur strjálbýlisins

Helstu stórveldin í briddsheiminum, Reykjavík og Reykjanes, urðu að lúta í lægra...

Sumar, vetur, von og haust
Líf&Starf 26. maí 2026

Sumar, vetur, von og haust

Það var á þessum tíma árs, rétt eftir sumarbyrjun, að horfellirinn lét harðast t...

Gjaldmiðill Íslands og gull
Líf&Starf 22. maí 2026

Gjaldmiðill Íslands og gull

Saga smjörs á Íslandi er samofin lífsbaráttu þjóðarinnar og ristir mun dýpra en ...

Ævintýralegt spil í úrslitunum
Líf&Starf 13. maí 2026

Ævintýralegt spil í úrslitunum

12 pör þurftu að kljást við spil dagsins sem kom upp í úrslitum Íslandsmótsins í...

Sagnaþáttur - Draugabani
Líf&Starf 27. apríl 2026

Sagnaþáttur - Draugabani

Um þessar mundir er öld liðin frá því að Indriði G. Þorsteinsson rithöfundur fæd...

Einbúinn á Þelamörk
Líf&Starf 13. apríl 2026

Einbúinn á Þelamörk

Haustið 1788 var Jóni Þorlákssyni veitt embætti sóknarprests á Bægisá á Þelamörk...

Sagnaþáttur: Velkomin Góa
Líf&Starf 10. mars 2026

Sagnaþáttur: Velkomin Góa

Góa er hafin. Mánaðarheitið góa, eða gói eins og forfeður okkar kölluðu þennan n...

Kapall er lausnarorð vísnagátu
Líf&Starf 4. mars 2026

Kapall er lausnarorð vísnagátu

Kapall er lausnarorð vísnagátunnar sem birtist í nýjasta Bændablaðinu.